Innlent

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliða­ár opin um­ferð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja brúin er neðan við Fella- og Hólahverfi í Breiðholti. Bráðabirgðahandrið eru á brúarkantinum.
Nýja brúin er neðan við Fella- og Hólahverfi í Breiðholti. Bráðabirgðahandrið eru á brúarkantinum. KMU

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi.

Nýja brúin er við lítt uppgötvaða útivistarperlu sem vaxandi skógarreitir hafa verið að mynda í Grænugróf. Af brúnni opnast sýn að fögrum hluta Elliðaánna en brúin kemur yfir ána á slaufukafla og liggur á milli tveggja bugða í ánni.

Af brúnni sést vel yfir bugðurnar tvær sem eru á þessum kafla árinnar.KMU

Smíði brúarinnar, sem verktakafyrirtækið Gleipnir annast, er þó ekki lokið. Eftir er að setja á hana endanlegt brúarhandrið og koma fyrir lýsingu. Bráðabirgðagirðingar á brúarkantinum þjóna á meðan sem handrið. Þá er unnið að því að tyrfa jarðvegssár meðfram stígum.

Brúin séð í átt að Grænugróf og Fellahverfi.KMU

Reykjavíkurborg stendur að brúargerðinni í Grænugróf. Hún er hluti verkefna samgöngusáttmálans milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu. Verksamningur með brú og stígum var upp á 322 milljónir króna. Borgin segir verkefnið í samræmi við þá stefnu hennar að efla vistvæna ferðamáta og að auka hlutdeild hjólreiða sem samgöngumáta í borginni.

Horft yfir brúna í átt að Vatnsendahverfi í Kópavogi.KMU

Brúin og göngustígar henni tengdir gagnast þó ekki síst íbúum Vatnsendahverfis í Kópavogi. Með henni opnast þeim greið hjóla- og gönguleið inn til Reykjavíkur með tengingu við meginstígakerfi borgarinnar.

Svona mun nýja brúin líta út þegar endanlegt handrið verður komið á hana.Reykjavíkurborg/Liska

Brúin er 55 metra löng og 6,5 metra breið; nægilega breið til að unnt sé að skilja að gangandi og hjólandi umferð. Samkvæmt lýsingu á vef Reykjavíkurborgar munu tíu sentimetra blá rör mynda samhverf handrið, sem sveigjast á hliðum brúarinnar. Segir borgin þarna vísað í kalda vatnið og vatnsveituna.

Arkitekar eru Teiknistofan Stika í samvinnu við Tertu. Verkfræðingar eru Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar. Ljósahönnuðir eru Liska.

Mikið er lagt í lýsingarhönnun og mun brúin setja svip á umhverfið í myrkri. Lýsingin mun beinast niður á brúargólfið.Reykjavíkurborg/Liska

Þetta er önnur brúin sem byggð er á sama tíma í Víðidal. Um fimmhundruð metrum ofar í ánni er önnur brú að rísa. Sú er liður í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð. Suðurverk annast verkið fyrir Vegagerðina sem er í samstarfi við Kópavogsbæ og Reykjavíkurborg.

Hér sést hvar efri brúin kemur neðan Breiðholtsbrautar á móts við Urðahvarf.Vegagerðin/Verkís

Tilkoma beggja þessara brúa mun opna á fjölbreyttari ferðamöguleika, hvort sem er fyrir gangandi, skokkandi eða hjólandi, á efri hluta Elliðaárdalssvæðisins á milli Breiðholtsbrautar og Vatnsveitubrúar. Þar hefur verið mun lengra á milli göngubrúa yfir árnar heldur en í neðri hluta dalsins, neðan Árbæjarstíflu.

Kortið sýnir báðar brýrnar og nýja göngu- og hjólastíga sem þeim fylgja.Reykjavíkurborg/Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar

Verkinu fylgja 800 metrar af nýjum stígum og verða göngu- og hjólastígar aðskildir þar sem því verður við komið. Í verkinu felast einnig breytingar á reiðstígum og gerð nýs áningarstaðar við Dimmu.


Tengdar fréttir

Tvær göngu- og hjólabrýr koma yfir Elliðaár í Víðidal

Framkvæmdir vegna nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hófust í síðustu viku. Brúin rís í Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks. Þetta er önnur brúin sem byggð er á sama tíma í Víðidal.

Vinna hafin við göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár

Framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar göngu- og hjólabrúar yfir Elliðaár, eða Dimmu, eins og áin nefnist á þessum kafla í Víðidal. Brúarsmíðin er einn verkþátta Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, sem Suðurverk og Loftorka annast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×