Innlent

Vekja at­hygli á bágri stöðu nepalskra kvenna með fjall­göngu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Lobuche er 6119 metrar á hæð. Með Lukku og Soffíu í för eru nepölsku fjallgöngukonurnar Pasang Lhamu Sherpa Akita og Purnima Shrestha, leiðsögukonurnar Pasang Doma Sherpa og Jangmu Sherpa, og burðarkonurnar Ambika, Nirmala, Sumina og Hira.
Lobuche er 6119 metrar á hæð. Með Lukku og Soffíu í för eru nepölsku fjallgöngukonurnar Pasang Lhamu Sherpa Akita og Purnima Shrestha, leiðsögukonurnar Pasang Doma Sherpa og Jangmu Sherpa, og burðarkonurnar Ambika, Nirmala, Sumina og Hira.

Hópur íslenskra og nepalskra fjallgöngukvenna gengu á dögunum upp á tindinn Lobuche í Himalayafjöllum til að vekja athygli á stöðu kvenna í Nepal og í fjallgöngugeiranum. Lobuche er rúmlega sex þúsund metra hár. 

Í fréttaskeyti frá hópnum segir að leiðangurinn hafi fengið heitið Climb for Change: Empowering Nepalese and Sherpa Women. 

Tilgangur ferðarinnar er að vekja athygli á bágborinni stöðu kvenna í Nepal. Í fréttaskeytinu segir að tækifæri til menntunar séu lítil í landinu og árlega séu mörg þúsund nepalskar konur gefnar eða seldar í mansal.

Fjallgönguna tileinka þær öllum stelpum og konum sem vilja láta drauma sína rætast. Með ferðinni safna þær áheitum fyrir stúlkur í fjallasamfélaginu í Nepal með það að markmiði að þær geti fengið störf sem fjallgönguleiðsögukonur.

Hópurinn kom við í grunnbúðum Everest.

„Sherpaþjóðin ásamt fjölda annarra þjóðflokka býr í Kumbu dalnum við rætur hæstu fjalla heims í Himalaya. Ein helsta leið kvenna til að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði er að taka þátt í ferðaþjónustu í kringum háfjallamennsku. Hingað til hefur það verið karlaheimur lokaður konum en nú eru fyrstu konurnar af Sherpaætt að komast inn í greinina og ryðja brautina fyrir aðrar konur,“ er haft eftir Soffíu S. Sigurgeirsdóttur, meðlimi í gönguhópnum. 

Ásamt Soffíu gengur Lukka Pálsdóttir og hópur nepalskra kvenna. Fram kemur að hópurinn sé kvennaleiðangur að öllu leyti, með þeim gangi kvenkyns leiðsögumenn, burðarkonur og fjallgöngukonur. 

Hópurinn náði upp á tind Lobuche East klukkan sjö í gærmorgun. Áheitasöfnunin stendur þó enn yfir, hægt er að lesa nánar um verkefnið og styrkja það hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×