„Ég held að við getum orðið enn betri“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. nóvember 2024 22:30 Nuno Espirito Santo hefur gert frábæra hluti með Nottingham Forest á þessu tímabili. EPA-EFE/PETER POWELL Nuno Espirito Santo, þjálfari Nottingham Forest sem situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, segir sína menn eiga meira inni. Liðið hefur ekki verið eins ofarlega í töflunni í 26 ár. „
Ég held að við getum orðið enn betri,“ sagði Nuno eftir 3-0 sigur gegn West Ham í dag. „Að sjálfsögðu. Því lengur sem liðið spilar saman, því betur fara þeir að þekkjast. Við erum með leikmenn sem eru að snúa aftur úr meiðslum. Hópurinn verður bara sterkari og eftir því sem tíminn líður trúi ég að tengingin verði líka sterkari og menn munu hjálpa hvorum öðrum meira. Því trúi ég innilega.“ Þetta er aðeins annað tímabil hans við stjórn en Forest var í fallbaráttu á síðasta tímabili, endaði í sautjánda sæti, sex stigum frá falli. Liðið hefur tekið miklum breytingum síðan þá. „Við höfum átt slæmar stundir saman og orðið fyrir miklum vonbrigðum. Nú getum við gleðst hvor með öðrum og notið velgengninnar. Við getum verið stoltir af frammistöðunni en leikmenn skilja og vita að það þarf að halda áfram að leggja hart að sér. Meira að segja [eins og í leik dagsins] þegar við vorum manni fleiri, þá héldu þeir áfram. Þeir héldu áfram að sækja til sigurs og skoruðu stórkostleg mörk sem við fengum að njóta – það er það sem fótbolti snýst um,“ sagði Nuno að lokum. Nottingham Forest er í þriðja sæti með nítján stig, fjórum stigum frá Manchester City og sex stigum frá toppliði Liverpool. Forest mætir Newcastle í næstu umferð.
Enski boltinn Mest lesið Í beinni: Real Sociedad - Man. Utd | Heldur fall United áfram gegn Orra? Fótbolti Benedikt hættur með kvennalandsliðið Körfubolti Gunnar kveður og Stefán tekur við Handbolti Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Fótbolti Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Fleiri fréttir Unnið ensku, frönsku, þýsku og spænsku meistarana án þess að fá á sig mark Spilaði leik sama dag og hann viðurkenndi að hafa orðið manni að bana Liverpool gæti mætt vængbrotnu liði í úrslitaleiknum á Wembley Oliver kældur eftir Mateta-atvikið Sjáðu frábæran skalla Benonýs Breka Gamla Liverpool stjarnan grét þegar hann rifjaði upp hræðilegan tíma Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Benoný Breki áfram á skotskónum „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Amorim: „Ég er ekki barnalegur“ Kvartar undan boltanum eftir tuttugu skot framhjá Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Stefán Teitur og félagar mæta Aston Villa Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Sjá meira