Erlent

Beðin um að til­kynna líkfundi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Petra Ósk Steinarsdóttir, dýralæknanemi sem býr í grennd við Valensía-borg.
Petra Ósk Steinarsdóttir, dýralæknanemi sem býr í grennd við Valensía-borg. Aðsend

Að minnsta kosti 51 er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær. Fjöldi Íslendinga hefur vetursetu á Spáni og í grennd við Valensía en utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála þar fyrir sunnan. Íslendingur á svæðinu segir óraunverulegt að upplifa hamfarirnar.

Petra Ósk Steinarsdóttir dýralæknanemi sem býr tíu mínútum frá Valensía-borg, segist hafa sloppið að mestu við flóðið en tekur fram að eyðilegging eftir óveðrið í nótt sé umtalsverð. Fólk á svæðinu er beðið um að tilkynna líkfundi í sérstakt símanúmer.

„Ég bý fyrir norðan borgina, tíu mínútum fyrir ofan. Það versta sem var þarna, var beint fyrir neðan hana og í kringum hana. Þessir bæir sem voru að lenda verst í þessu eru sumir bara 20 mínútum frá mér.

Ég er aðallega bara að sjá eftir vindinn, það er mikið af brotnum trjám. Ég er að sjá hérna í nágrenninu eyðileggingu, einn gluggi sem er brotinn. Grindverkið í garðinum mínum brotnaði. Það var bara rifið upp úr steypunni.“

Nóttin skelfileg

Hún segir alla þá Íslendinga sem hún þekkir á svæðinu vera örugga. Ótrúlegt sé að sjá að staðir sem hún er vön að keyra í gegnum séu rústir einar. Nóttin hafi verið skelfileg og óraunverulegt sé að horfa upp á afleiðingar hamfaranna. 

„Þetta byrjaði þannig að við byrjuðum að fá neyðarskilaboð í símann frá ríkinu sem er þá bara svona sírena sem kemur í símann. Það byrjar að segja, haldið ykkur inni ekki fara neitt, og ég var að fá þannig yfir nóttina. Ég vaknaði tvisvar yfir nóttina við það að það var sírena í gangi í símanum mínum.

Ég fékk svona skilaboð í nótt aftur. Fékk þá símanúmer fyrir ef maður finnur fólk sem er dáið að láta vita, því talan er núna komin yfir 50, þá virkar ekki lengur að hringja í neyðarlínuna.“

Petra stunda nám við dýralækningar.Aðsend

Neyðarástand á svæðinu

Petra segist eiga að halda sig inni í dag samkvæmt fyrirmælum frá stjórnvöldum. Skólar, fyrirtæki og flest allir staðir á svæðinu séu lokaðir í dag.

„Við fengum annað svona neyðarskilaboð í morgun, bara vinsamlegast haldið ykkur inni, leyfið lögreglu og þeim að nota göturnar til að hjálpa.“

 Svo það er bara algjört neyðarástand þarna á svæðinu?

„Já eiginlega. Þetta var mjög skrítið í nótt, þegar þetta var sem verst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×