Körfubolti

Andri Geir spreytti sig á takkaskóaprófinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nokkuð erfitt próf sem Andri stóð sig vel í.
Nokkuð erfitt próf sem Andri stóð sig vel í.

Andri Geir Gunnarsson var gestur í Körfuboltakvöldi Extra á Stöð 2 Sport í gærkvöldi. Hann er hvað þekktastur fyrir hlaðvarpið Steve Dagskrá sem hann heldur úti ásamt Vilhjálmi Hallssyni.

Andri er þekktur fyrir það að vera mikill áhugamaður um takkaskó og því tók hann þátt í leik þar sem hann átti að giska á þekkta takkaskó og hvaða knattspyrnumaður var kenndur við umrædda skó.

Um var að ræða skópör sem voru sum hver yfir þrjátíu ára gömul. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst en Tómas Steindórsson fékk leyfi til að aðstoða Andra.

Klippa: Andri Geir spreytti sig á takkaskóaprófinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×