Lífið samstarf

Rit­dómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin

Lestrarklefinn og Díana Sjöfn Jóhanssdóttir
Díana Sjöfn Jóhannsdóttir er aðstoðarritstjóri Lestrarklefans og fjallar hér um nýjustu skáldsögu Elísabetar Jökulsdóttur.
Díana Sjöfn Jóhannsdóttir er aðstoðarritstjóri Lestrarklefans og fjallar hér um nýjustu skáldsögu Elísabetar Jökulsdóttur.

Nýjasta skáldsaga Elísabetar Jökulsdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn en þar er fjölbreytt flóra bóka tekin fyrir og haldið úti líflegri umræðu um bókmenntir á Íslandi.  Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar hér um Límonaði frá Díafani:

Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu, það er nóvellan eða stutta skáldsagan Límonaði frá Díafani. Í henni fer Elísabet yfir æskuár sín og þá nánar tiltekið ákveðna ferð til Grikklands sem hún fór í átta ára gömul með foreldrum sínum og systkinum.

Það mætti segja að verkið sé partur af fjölskylduseríu Elísabetar en hún hefur auðvitað mikið verið að vinna með eigin reynslu og fjölskyldusögu í verkum sínum. Verkin Aprílsólarkuldi og Saknaðarilmur vöktu til að mynda mikla athygli þegar þau komu út en í Aprílsólarkulda fer hún yfir sambandið við föður sinn og í Saknaðarilmi tengslin við móður sína.

Smáskoðun á virkni minninga

Í Límonaði frá Díafani er fókusinn aftur á pabba hennar að ákveðnu leyti, en hér er hún meira í endurliti og skoðun á tilfinningum barnæskunnar. Minningar og virkni þeirra er einnig í brennidepli, hvernig við munum hluti og atburði stopult og jafnvel einungis með lyktar- eða bragðskyninu, hvernig sumar minningar magnast upp á meðan aðrar hverfa, og hvernig sumt sé betra í minningunni en það er síðan í núinu.

Hægt er að lesa umfjöllunina í heild sinni hér.  Fleiri ritdóma er að finna inni á lestrarklefinn.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×