Lífið

„Ég sparka bara í þig á eftir“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þorgerður Katrín gæðir sér á fimm vængjum með sífellt sterkari sósu.
Þorgerður Katrín gæðir sér á fimm vængjum með sífellt sterkari sósu. Vísir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er ekki til í að fallast á að alþingismenn séu drykkfelldari en aðrar starfsstéttir. Hún segir þvert á það sem margir haldi sé mikil gleði á þingi og segist hún sjá ákveðna fegurð í því þegar þingmenn fá sér í glas saman.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta þætti Af vængjum fram, skemmtiþætti á Stöð 2 og Vísi í tilefni af Alþingiskosningum. Þar setjast leiðtogar stjórnmálaflokkanna niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli.

Í þættinum svarar Þorgerður því hvaða þingmann hún væri helst til í að taka með sér á deit, svarar hraðaspurningum, nefnir þá þingmenn sem henni þykir sætastir og tekur sitt uppáhalds karaokí lag, svo fátt eitt sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×