Lífið

Hafi liðið sem gísl í Argentínu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Liam Payne og Kate Cassidy voru saman þar til stuttu áður en hann lést.
Liam Payne og Kate Cassidy voru saman þar til stuttu áður en hann lést. Darren Gerrish/Getty Images

Samfélagsmiðlastjarnan Kate Cassidy kærasta Liam Payne fannst líkt og hún væri gísl kærasta síns þar sem þau dvöldu saman í Buenos Aires í Argentínu stuttu áður en hann lést í sama fríi. Hún hafi átt gríðarlega erfitt með þá ákvörðun að fara eftir tvær vikur í Argentínu með söngvaranum.

Frá þessu keppast erlendir slúðurmiðlar nú að hafa eftir vinkonu Cassidy. Payne lést í síðustu viku eftir að hann féll fram af svölum á hóteli í Buenos Aires í Argentínu. Komið hefur í ljós að söngvarinn var á fjöldanum öllum af eiturlyfjum en starfsfólk hringdi á neyðarlínu þar sem hann lét þar öllum illum látum. Áður hefur komið fram að hann hafi nýverið verið búinn að missa plötusamning sinn og umboðsmann.

Voru í tvær vikur saman á hótelinu

Fram kemur í umfjöllun PageSix um málið að parið hafi fyrst einungis ætlað sér að dvelja í Buenos Aires í nokkra daga, til þess að fara á tónleika hjá Niall Horan. Payne hafi hinsvegar ítrekað framlengt ferðina þrátt fyrir að Cassidy hafi viljað fara.

„Þau eru í Argentínu og þetta er eins og gíslataka,“ segir vinkona hennar. „Hún segir honum að hún vilji fara, þetta er viku síðar. Hann grátbiður hana um að vera og hún framlengir alltaf ferðina, um einn dag, svo tvo daga. Hann vill bara að hún verði áfram, áfram, áfram.“

Hún hafi að endingu gefist upp. Hana hafi langað heim til sín, til vina sinna og fjölskyldu auk þess sem hún hafi haft skyldum að gegna í heimalandinu.

Hafi ætlað að giftast

Sjálf hefur Cassidy ekki með beinum hætti tjáð sig um síðustu daga sína með kærasta sínum. Hún minntist hans hinsvegar í einlægri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram sem hún birti í gær. Þar segir hún Payne hafa skrifað sér bréf stuttu fyrir andlát hans.

„Ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja. Hjarta mitt er brotið á hátt sem ég get ekki lýst. Ég vildi að þú gætir séð þau áhrif sem þú hefur á heiminn jafnvel þótt það sé sveipað rökkri einmitt núna. Þú færðir öllum svo mikla gleði og jákvæðni, milljónum aðdáenda, vinum, fjölskyldu og sérstaklega mér. Þú varst svo ótrúlega elskaður.“


Tengdar fréttir

Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi

Hótelgestur á CasaSur Palermo sem var einn sá síðasti til að eiga samskipti við breska söngvarann Liam Payne lýsir því að söngvarinn hafi verið hegðað sér einkennilega og  óþægilega við aðra hótelgesti skömmu áður en hann fór upp á herbergi sitt þar sem hann féll svo af svölunum. Hann þóttist kyrkja einn gestanna, rústaði tölvunni sinni og bar fyrir sig að hann hefði eitt sinn verið í strákabandi. 

Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne

Zayn Malik hefur ákveðið að fresta Ameríkutúr sínum vegna fráfalls Liam Payne. Malik og Payne voru saman í strákahljómsveitinni One Direction. Payne lést á miðvikudag eftir að hafa fallið af svölum á hóteli í Buenos Aires í Argentínu.

Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið

Bandaríska útgáfufyrirtækið Universal Music sagði upp samningi sínum við breska söngvarann Liam Payne nokkrum dögum fyrir andlát hans. Þá var hann án umboðsmanns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.