Fótbolti

Brjálaðist er hann var tekinn út af strax eftir að hafa skorað

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jhon Durán fagnar með Ross Barkley og Leon Bailey.
Jhon Durán fagnar með Ross Barkley og Leon Bailey. getty/Aston Villa

Jhon Durán, framherji Aston Villa, er vanur að koma af bekknum og láta til sín taka. Gegn Bologna var hann hins vegar í byrjunarliði Villa og skoraði en varð æfur er hann var tekinn af velli.

Villa tók á móti Bologna í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í gær. Durán var í byrjunarliði Villa á kostnað Ollies Watkins en þetta var fyrsti heimaleikurinn í ellefu mánuði sem hann byrjar.

Durán gulltryggði sigur Villa þegar hann skoraði annað mark liðsins á 64. mínútu. Strax eftir markið var hann tekinn af velli. 

Kólumbíumaðurinn hafði engan húmor fyrir því og sparkaði aftan í sæti á varamannabekknum í bræðiskasti eins og sjá má hér fyrir neðan.

Klippa: Durán reiður

Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, tók þessu með stóískri ró og hrósaði Durán eftir leikinn.

„Durán skoraði og er sjóðheitur. Við erum með frábæra samkeppni um framherjastöðuna með þá Watkins sem geta skorað mörk,“ sagði Emery.

Durán hefur skorað sjö mörk á tímabilinu og er markahæstur í liði Villa. Watkins kemur næstur með fimm mörk.

Villa vann leikinn í gær, 2-0, og er á toppi Meistaradeildarinnar með níu stig og markatöluna 6-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×