Viðskipti innlent

Nýr fram­kvæmda­stjóri á Oche

Árni Sæberg skrifar
Davíð Lúther Sigurðarson er nýr framkvæmdastjóri Oche Reykjavík.
Davíð Lúther Sigurðarson er nýr framkvæmdastjóri Oche Reykjavík. Oche Reykjavík

Davíð Lúther Sigurðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche Reykjavík í Kringlunni. Davíð Lúther er einnig einn af eigendum staðarins.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Davíð Lúther hafi stofnað framleiðslufyrirtækið Silent árið 2009, sem hafi síðar verið sameinað auglýsingastofunni Sahara, sem hann hafi einnig stofnaði árið 2016.

Davíð Lúther hafi verið framkvæmdastjóri ákveðið að hætta í auglýsingageiranum á síðasta ári og söðla um. Einnig hafi hann kynnt The Color run fyrir Íslendingum þegar hann kom með það til landsins árið 2015 en  það sé nú í eigu Senu live.

Davíð tekur við starfinu af Mikael Harðarsyni.

Oche Reykjavík er á þriðju hæð Kringlunnar þar sem áður var Stjörnutorg. Staðurinn býður upp á upplifun og veitingar. Oche er með veitingastað, bar, einkaherbergi, fimmtán pílubása, fimm shuffle borð og tvö karaoke herbergi. Staðurinn tekur allt að 300 gesti í sæti í mat og drykk. Staðurinn var opnaður fyrr á árinu og Mikael Harðarson var framkvæmdastjóri frá opnun þar til nú.

„Viðtökurnar í haust hafa verið alveg frábærar og við erum í skýjunum. Mér finnst að flest fyrirtæki landsins séu búin að koma í heimsókn nú þegar. En það eru auðvitað ýkjur af minni hálfu. En hér á Oche Reykjavík hefur verið uppbókað fimmtudaga til laugardaga síðustu 5-6 vikur. Aðrir dagar hafa verið einnig mjög fínir. Sunnudagar eru sérstakir fjölskyldudagar en lokað er á mánudögum hjá okkur,“ er haft eftir Davíð Lúther.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×