Lífið

Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Birta og Gunnar eiga dóttur fyrir.
Birta og Gunnar eiga dóttur fyrir. Birta Líf

Birta Líf Ólafsdóttir, markaðssérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, og Gunnar Patrik Sigurðsson fasteignasali eiga von á dóttur.

Birta greinir frá þessu í myndbandi sem hún birti á síðu sinni á Instagram. Myndbandið sýnir fjölskylduna í myndatöku við tilefnið en þau eiga eina dóttur fyrir, Emblu Líf. Undir myndbandinu stendur: „Gunnarsdóttir 2025.“

Gunnar og Birta hafa verið saman í tíu ár og Birta sat fyrir svörum í viðtalsliðnum Ást er fyrr á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.