Viðskipti innlent

Frestun sölu Ís­lands­banka já­kvæð fyrir markaðinn

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Snorri Jakobsson segir að það hefði ekki verið skynsamlegt að halda áfram með sölu Íslandsbanka á þessu ári.
Snorri Jakobsson segir að það hefði ekki verið skynsamlegt að halda áfram með sölu Íslandsbanka á þessu ári. Vísir/Arnar

Ákveðið var í gær að slá sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka á frest. Greinandi segir þessa ákvörðun hafa jákvæð áhrif á markaðinn.

Einhugur var um að fresta sölunni innan ráðherranefndar um ríkisfjármál, þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra eiga sæti, að fenginni ráðgjöf frá umsjónaraðilum útboðsins.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra er alla jafna þriðji maður ráðherranefndar en eftir að Guðmundur Ingi Guðbrandsson hætti í starfsstjórn er slíkum ekki lengur að dreifa.

„Bankasalan er búin að hanga svolítið eins og mara yfir markaðnum. Menn hafa búist við miklu framboði hlutabréfa, sem hefðu fylgt sölunni. Nú er ljóst að það framboð verður ekki þannig að þetta eru jákvæð áhrif, þá sjá menn fram á minna framboð,“ segir Snorri Jakobsson hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að við ákvörðunartökuna hafi verið horft til markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. Mikilvægt sé að hámarka líkur á að útboðið heppnist vel og að næg þátttaka fáist, meðal annars frá almenningi.

Snorri segir að það hefði verið óskynsamlegt að ráðast í bankasölu nú þegar nokkuð ljóst er að önnur ríkisstjórn verði komin eftir nokkrar vikur.

„Þetta er eitthvað sem þú selur ekki á þremur vikum. Sex vikur eru mjög skammur tími til að keyra allt af stað með bankasölu. Menn hafa bara ákveðið að fresta því, því nú vita menn ekkert hvaða ríkisstjórn tekur við, sem er kannski á móti bankasölu. Það er bara ekki skynsamlegt.“


Tengdar fréttir

„Hraust­leg lækkun“ á van­mati fé­laga eftir að markaðurinn tók loksins við sér

Eftir dræman árangur í samanburði við flesta erlenda hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið hefur íslenski markaðurinn, einkum núna þegar vaxtalækkunarferlið er farið af stað, loksins tekið við sér og það er margt sem vinnur með honum um þessar mundir, að mati hlutabréfagreinenda. Hækkandi hlutabréfaverð kemur hins vegar á sama tíma og það er að draga úr samkeppnishæfni Íslands eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu á undanförnum árum.

Sölunni slegið á frest

Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka vegna markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. 42,5 prósenta hlutur ríkisins er um 92 milljarða virði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×