Arsenal mis­tókst að koma sér á toppinn

Siggeir Ævarsson skrifar
Justin Kluivert fagnar marki sínu í dag en hann skoraði úr vítaspyrnu sem gulltryggði sigurinn
Justin Kluivert fagnar marki sínu í dag en hann skoraði úr vítaspyrnu sem gulltryggði sigurinn Vísir/Getty

Arsenal gat tyllt sér tímabundið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í dag með sigri á Bournemouth en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu.

William Saliba fékk að líta rauða spjaldið á 30. mínútu fyrir nokkuð klaufalegt brot og léku gestirnir því manni færri tvo þriðju úr leiknum. 

Mörkin létu þó á sér standa en bæði lið fengu tækifæri til að ná forystunni í leiknum. Það var ekki fyrr en á 70. mínutu sem Ryan Christie braut ísinn fyrir heimamenn eftir stoðsendingu frá Justin Kluivert. Kluivert gulltryggði Bournemouth svo sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 70. mínútu og fyrsta tap Arsenal á leiktíðinni staðreynd.

Arsenal er eftir leikinn í 3. sæti, með 17 stig líkt og Manchester City og stigi á eftir toppliði Liverpool, en bæði lið eiga leik til góða á Arsenal.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira