Fótbolti

Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í lands­liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aitana Bonmati hefur spilað frábærlega með frábæru liði Barcelona en álagið á henni hefur verið mikið. Nú fær hún hvíld frá næsta verkefni landsliðsins.
Aitana Bonmati hefur spilað frábærlega með frábæru liði Barcelona en álagið á henni hefur verið mikið. Nú fær hún hvíld frá næsta verkefni landsliðsins. Getty/Florencia Tan Jun

Aitana Bonmatí, sem er að flestum talin vera besta knattspyrnukona heims, var ekki valin í nýjasta landsliðshóp heimsmeistara Spánverja.

Bonmatí var valin knattspyrnukona ársins 2023 hjá FIFA og fékk einnig Gullhnöttinn í fyrra. Hún kemur einnig til greina í ár og þykir sigurstrangleg.

Það urðu því margir hissa þegar þessi frábæri leikmaður var ekki valin í spænska landsliðið í gær.

Landsliðsþjálfarinn Montse Tomé útskýrði ákvörðun sína á blaðamannafundi en þar kom fram að þjálfarinn er með þessu fyrst og fremst að hugsa um andlega og líkamlega heilsu leikmannsins. ESPN segir frá.

Mikið álag er á bestu knattspyrnukonunum og mikið hefur verið um alvarleg meiðsli hjá stjörnum kvennaboltans.

Bonmatí var með spænska landsliðinu á Ólympíuleikunum í sumar og hefur spilað sjö af átta leikjum Barcelona til þessa á tímabilinu. Hún er í lykilhlutverki á báðum stöðum og álagið er mikið.

Leikmaðurinn missti af leik á móti Madrid CFF 5. október síðastliðinn vegna smávægilegra meiðsla.

„Við höfum farið yfir þetta með Barcelona og með Aitanu sjálfri. Það er okkar mat að hún þurfi á hvíld að halda,“ sagði Tomé á blaðamannafundi.

„Landsliðið hefur alltaf passað upp á heilbrigði leikmanna og ávallt sett heilsu þeirra í fyrsta sæti. Okkar þjálfarateymi fylgist vel með öllum okkar leikmönnum og við reynum að velja þá leikmenn sem geta skilað okkur sínu besta hverju sinni,“ sagði Tomé.

Bonmatí fær því í frí í næsta landsleikjaglugga og hún fær um leið tækifæti til að mæta á hátíðina þar sem Gullhnötturinn er veittur. Margar landsliðskonur komast ekki á hátíðina því hún er haldin á sama tíma og landsliðsverkefni eru í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×