Innlent

Sara sækist eftir fyrsta sæti í Reykja­vík hjá Pírötum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sara með dætrum sínum tveimur.
Sara með dætrum sínum tveimur. Aðsend

Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata sækist eftir því að leiða lista Pírata í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Fyrr í dag tilkynnti Lenya Rún Taha Karim um það sama. Áður hafa oddvitar kjördæmanna og þingmenn flokksins, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunnarsson, gefið það út að þau ætli að halda áfram. Það er því ljóst að slagur verður um efstu sætin í prófkjöri Pírata.

Flokkyrinn heldur prófkjör um allt land. Framboðsfrestur rennur út á sunnudag og kosningu lýkur svo á þriðjudag. Eftir það munu listar í öllum kjördæmum liggja fyrir. Í Reykjavík er boðið fram í bæði kjördæmin en raðað á lista í hvoru kjördæmi.

„Ég hef töluverða reynslu af þingmennsku hafandi verið varaþingmaður síðustu þrjú kjörtímabil og veit því nákvæmlega hvað ég væri að fara út. Þekki starfið, vinnuálagið, skuldbindinguna og eldmóðinn sem þarf til að halda starfið út,“ segir Sara í tilkynningu um framboð sitt á Facebook.

Þar fer hún vel yfir það hver hún er og hver hennar helstu baráttumál séu.

„Ég býð mig fram í prófkjöri Pírata fyrir komandi Alþingiskosningar á höfuðborgarsvæðinu, því ég vil berjast fyrir því að stjórnmálin verði meira en pólitísk leikrit. Ég er tilbúin í þetta af öllum hug og hjarta og leitast eftir að leiða listann í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.“


Tengdar fréttir

Lenya vill for­ystu­sæti hjá Pírötum í Reykja­vík

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavíkurkjördæmunum. Það tilkynnti Lenya á Facebook í færslu í gær. Hún hefur síðustu þrjú ár sinnt varaþingmennsku fyrir flokkinn en segir tíma til kominn að hleypa nýju fólki að borðinu.

Píratar halda prófkjör

Kjörstjórn Pírata fyrir alþingiskosningar 2024 hefur boðað til prófkjörs dagana 20.–22. október næstkomandi þar sem kosið verður um sæti á framboðslista flokksins í öllum kjördæmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×