Innlent

Þau skipa upp­stillingar­nefnd Sjálf­stæðis­manna í Reykja­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar, er formaður uppstillingarnefndarinnar.
Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar, er formaður uppstillingarnefndarinnar. Vísir/Vilhelm

Fimmtán manns tóku sæti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundi kjördæmaráðs flokksins í gær. Berta Gunnarsdóttir, varaformaður Varðar – fulltrúaráðssins í Reykjavík, er formaður nefndarinnar.

Albert Guðmundsson, formaður Varðar, segir í samtali við Vísi að tillaga Varðar um að stilla upp á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, sem samþykkt var á stjórnarfundi Varðar á þriðjudaginn, hafi verið borin upp á fundi kjördæmaráðsins í Valhöll í gærkvöldi og hún samþykkt.

Fimmtán einstaklingar hafi verið kjörnir í uppstillingarnefndina – sjö frá Verði og svo átta á fundinum í gær. Uppstillingarnefndin hafi svo einnig fundað að loknum fundi kjördæmaþingsins í gær og þar hafi Berta verið kjörin formaður.

Þau sem skipa uppstillingarnefndina eru:

Skipuð af stjórn Varðar:

  • Auður Björk Guðmundsdóttir (tilnefnd af Málfundafélaginu Óðni)
  • Einar Hjálmar Jónsson (tilnefndur af Félagi eldri sjálfstæðismanna í Reykjavík)
  • Rósa Kristinsdóttir (tilnefnd af Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík)
  • Sylvía Martinsdóttir (tilnefnd af Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík)
  • Berta Gunnarsdóttir (tilnefnd af stjórn Varðar)
  • Elín Jónsdóttir (tilnefnd af stjórn Varðar)
  • Sigurður Helgi Birgisson (tilnefndur af stjórn Varðar)

Kjörin á fundi kjördæmisráðsins í gær:

  • Guðný Halldórsdóttir
  • Janus Arn Guðmundsson
  • Magnús Júlíusson
  • Magnús Þór Gylfason
  • Signý Pála Pálsdóttir
  • Tjörvi Guðjónsson
  • Úlfur Þór Andrason
  • Vigfús Bjarni Albertsson

Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir leiddu lista Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í síðustu kosningum – Guðlaugur Þór í norður og Áslaug Arna í suður. Áslaug Arna lýsti því yfir í morgun að hún vilji áfram leiða liðsta Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Mikill hiti var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þremur árum þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson börðust af miklum krafti um oddvitasæti flokksins. Þar hafði Guðlaugur Þór betur.


Tengdar fréttir

Átök Áslaugar og Guðlaugs Þórs ekki endurtekin

Allar líkur eru á því að stillt verði upp á listum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmum fyrir komandi Alþingiskosningar sem flest bendir til að verði í lok nóvember. Mikill hiti var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þremur árum þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson börðust af miklum krafti um oddvitasæti flokksins.

Áslaug Arna vill halda sæti sínu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×