Sport

Mætti strax í heim­sókn til Rodgers

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þeir Rodgers og Adams komu þáttastjórnendum á óvart. Adams kíkti við hjá leikstjórnandanum.
Þeir Rodgers og Adams komu þáttastjórnendum á óvart. Adams kíkti við hjá leikstjórnandanum. Skjáskot/Twitter

Aaron Rodgers, leikstjórnandi New York Jets í NFL-deildinni, virðist ánægður með nýjan liðsfélaga sinn Davante Adams. Þeir léku saman um árabil með Green Bay Packers og sameinast á ný eftir að Adams var skipt til Jets. Rodgers var fljótur að bjóða honum í heimsókn.

Örfáar klukkustundir höfðu liðið frá því að tilkynnt af um skipti Adams frá Las Vegas Raiders til New York Jets þegar Rodgers var gestur í hlaðvarpi Pat McAfee í gegnum fjarfundarbúnað.

Rodgers kom þáttastjórnendum á óvart þegar hann leit við í þáttinn. Þá var Adams kominn í heimsókn til Rodgers og leit við í þættinum við mikil fagnaðarlæti líkt og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Jets skiptu nýverið um þjálfara þegar Robert Saleh var sagt upp störfum en samkvæmt bandarískum miðlum hafði Rodgers töluvert um þá ákvörðun að segja. Hann á að hafa verið ósáttur við störf hans.

Ljóst er að Rodgers leiðist ekki síður að endurnýja kynnin við útherjann Adams en þeir félagar léku stórvel saman með Green Bay Packers árin 2014 til 2021, þá sérstaklega seinni hlutann.

Jets töpuðu fyrsta leik undir stjórn bráðabirgðastjórans Jeff Ulbrich. Sá tapaðist naumlega, 23-20, fyrir Buffalo Bills á heimavelli. Jets hefur unnið tvo leiki en tapað fjórum á leiktíðinni en stuðningsmenn liðsins vonast eflaust eftir því að það birti til með sameiningu Rodgers og Adams.

Bills gerðu einnig stór skipti á markaðnum og náðu í útherjann Amari Cooper í gær frá Cleveland Browns sem mun að líkindum þreyta frumraun sína gegn Tennessee Titans á sunnudag. 

Fyrsti leikur Rodgers og Adams saman með Jets er gegn Pittsburgh Steelers klukkan hálf eitt aðfaranótt mánudags.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×