Körfubolti

Kristófer valdi besta samherjann á ferlinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristófer hefur spilað með mörgum af bestu íslensku leikmönnum sögunnar.
Kristófer hefur spilað með mörgum af bestu íslensku leikmönnum sögunnar.

Eins og fram kom í Körfuboltakvöldi Extra í gærkvöldi og á Vísi í morgun stefnir Kristófer Acox á endurkomu með Valsmönnum á næstu vikum. Hann ætlar sér að vera kominn á fullt í Bónusdeildinni í janúar.

Kristófer var beðinn um það í þættinum í gær að velja besta samherjann á ferlinum. Samherjar sem hann hefur spilað með í KR, Val og með íslenska landsliðinu.

Þeir sem komu til greina voru:

Helgi Már Magnússon

Matthías Orri Sigurðarson

Brynjar Þór Björnsson

Kristinn Pálsson

Ægir Þór Steinarsson

Haukur Helgi Pálsson

Logi Gunnarsson

Tryggvi Snær Hlinason

Kári Jónsson

Jón Arnór Stefánsson

Pavel Ermolinskij

Martin Hermannsson

Kristó fékk alltaf að velja á milli tveggja leikmanna þar til einn stóð eftir. Sá sem stóð eftir ætti ekki að koma mörgum á óvart eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Kristó velur besta samherjann á ferlinum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×