Innlent

Vaktin: Fyrsta stóra á­kvörðun Höllu sem for­seti handan við hornið

Kjartan Kjartansson og Jón Þór Stefánsson skrifa
Bjarni mættur á fund forseta eftir að hafa rætt við fjölmiðlamenn fyrir utan Bessastaði.
Bjarni mættur á fund forseta eftir að hafa rætt við fjölmiðlamenn fyrir utan Bessastaði. vísir/vilhelm

Halla Tómasdóttir, forseti, fundar með Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, á Bessastöðum klukkan 16 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Eftir að Bjarni óskaði eftir leyfi til að rjúfa þing í gær boðaði Halla að hún ætlaði að ræða við formenn hinna stjórnmálaflokkanna á Alþingi áður en hún gerði grein fyrir afstöðu sinni síðar í vikunni. Bjarni hefur síðan boðað að hann ætli að óska lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.

Töluverð óvissa hefur skapast um framhaldið. Bjarni sagðist í gær gera ráð fyrir að ríkisstjórnin sæti áfram fram að kosningum í lok nóvember til þess að ganga frá fjárlögum og öðrum málum þeim tengdum. 

Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, lýsti sig hins vegar andsnúna því að sitja áfram í starfsstjórn undir forystu Bjarna en sagðist geta hugsað sér að fá Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, til þess að leiða starfsstjórn.

Vísir verður í beinni útsendingu frá Bessastöðum þar sem Heimir Már Pétursson verður á vettvangi. Þá verður farið yfir stöðu mála í vaktinni hér fyrir neðan.

Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki strax er ráð að endurhlaða síðunni:






Fleiri fréttir

Sjá meira
×