Viðskipti innlent

Hefur lokið störfum hjá Við­reisn en vill vera á lista

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sigurður Orri Kristjánsson á ættir að rekja til Hólmavíkur.
Sigurður Orri Kristjánsson á ættir að rekja til Hólmavíkur. Viðreisn

Sigurður Orri Kristjánsson stjórnmálafræðingur hefur látið af störfum hjá Viðreisn, en þar starfaði hann sem verkefnastjóri samfélagsmiðla og viðburða. Þrátt fyrir það ætlar hann að sækjast eftir sæti ofarlega á lista.

Þetta staðfestir hann í skriflegu svari til fréttastofu.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, sagði í samtali við fréttastofu að Sigurður hefði hætt í byrjun mánaðar. „En það getur bara vel verið að hann dúkki upp á listum hjá okkur.“

Greint var frá því í byrjun septembermánaðar í fyrra að Sigurður hefði hafið störf hjá Viðreisn, líkt og áður segir sem verkefnastjóri samfélagsmiðla og viðburða.

Árin á undan hafði Sigurður starfað í fjölmiðlum við ýmis verkefni og til að mynda verið fréttamaður hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Einnig hefur hann mikið verið viðloðinn umfjöllun um íþróttir, sér í lagi körfubolta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×