Viðskipti innlent

Nýir eig­endur Skagans stefna á að hefja starf­semi í nóvember

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Fyrirtækið Skaginn 3X var úrskurðað gjaldþrota í júlí.
Fyrirtækið Skaginn 3X var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Vísir/Arnar

Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi. Auk þess munu þeir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir í því skyni að hefja þar aftur rekstur. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaupin, en það er nýtt félag, KAPP Skaginn ehf., sem er kaupandi.

Fram kemur í tilkynningu að félagið muni kaupa allan búnað og lausafé þrotabúsins og taka húsakost á leigu. Marmiðið sé að hefja rekstur að nýju og byggja upp starfsemi undir nafni KAPP Skagans á Akranesi.

Félagið er að meirihluta í eigu KAPP ehf., sem lýst er sem rótgróins tæknifyrirtækis sem sérhæfi sig í tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Aðrir hluthafar KAPP Skagans ehf. eru meðal annars Eignarhaldsfélagið VGJ og TECTRU S/A auk lykilstarfsmanna hins nýja félags og ýmsir fjárfestar.

Væntingar um ábatasama starfsemi

Af hálfu þrotabúsins komu Helgi Jóhannesson skiptastjóri og Íslandsbanki að gerð samkomulagsins. Freyr Friðriksson, forstjóri og stærsti hluthafi KAPP, sem er bjartsýnn á framtíð félagsins að því er haft er eftir honum í tilkynningunni.

„Ekki aðeins er verið að tryggja störf á Akranesi heldur eru væntingar okkar að þarna verði rekin ábatasöm starfsemi sem til lengri tíma geti orðið miðstöð þekkingar og þróunar félagsins fyrir m.a. sjávarútveg hér á landi,“ er haft eftir Frey. Þessum áfanga hefði ekki verið náð nema af því að margir hafi lagst á eitt, „ekki bara forsvarsmenn þrotabúsins og Íslandsbanka, heldur einnig Akraneskaupstaður, auk fjölda annarra aðila.“

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en vonir standa til þess að unnt verði að hefja starfsemi að nýju á Akranesi þann 1. nóvember næstkomandi.

Ráðgjafar kaupanda við viðskiptin voru LEX lögmannstofa og OPUS lögmenn auk þess sem að Sævar Freyr Þráinsson veitti aðilum ráðgjöf í sjálfboðavinnu en Sævar Freyr er fyrrverandi bæjarstjóri Akraness. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×