Skoðun

Sundlaugasóðar

Ámundi Loftsson skrifar

Til þeirra sem sjá um rekstur sundstaða

Tilefni þessara skrifa er með leiðinlegra móti, en það er sóðaskapur á sundstöðum. Sá plagsiður færist í vöxt að menn koma inní sturturými sundstaða í sundfötum og fyrir kemur líka að það sér í nærbuxnastrengi uppúr sundskýlunum hjá þeim. Þeir rétt bregða sér undir sturtu, svo þeir varla meira en rétt ná að blotna og fara svo útí laug eða pott.

Oftar en ekki eru þetta hópar ungmenna undir tvítugu, þá kannski þrír til fimm saman sem allir hafa þá sama háttinn á. Að uppistöðu eru hér á ferð ungir Íslendingar, gjarnan talandi um íþróttir.

Þetta gerist ekki bara stundum. Þetta er alveg viðvarandi og gerist án undantekninga og sést í hvert skipti sem farið er í sund.

Fyrir kemur líka að menn eru í sundskýlum þegar þeir koma á sundstaðina. Sumir þeirra fara jafnvel fara framhjá sturturýminu og og óþvegnir beint út í laug.

Öllu hugsandi fólki er ljóst að svona háttsemi er bæði ferlegur sóðaskapur og fullkomið tillitsleysi við aðra laugargesti. Það verður að taka á þessu. Þetta lagar sig ekki sjálft.

Augljóst er að hafa verður baðreglur sundstaðanna mun sýnilegri en þær eru og hafa of lengi verið. Hugsanlega mætti hafa þær, bæði á Íslensku og fleiri tungumálum og hafa á skápahurðum í búningsrýmum og jafnvel við hverja sturtu. Starfsfólk sundstaðanna mætti vera virkara í eftirliti með því að laugargestir virði reglur um hreinlæti, sama hve leiðinlegt það er og óþarft það í raun ætti að vera.

Vera kann að sumum þyki ekki þægilegt að fara úr öllum fötum í almannarými eins og venja er. Þá vaknar sú spurning hvort ekki sé hægt að mæta þörfum þeirra með rými sem hægt yrði að loka þannig að þeir geti þrifið sig óséðir af öðrum.

Öll hljótum við að vera sammála um að taka verður á þessu ástandi. Það má t.d. gera í skólum, innan íþróttafélaga og ekki síst meðal þeirra sem sjá um rekstur sundstaðanna sjálfra.

Við Íslendingar megum vera stoltir af rótgróinni sundstaðamenningu okkar. Látum hana ekki verða sóðaskap að bráð.

Höfundur er fyrrverandi sjómaður og bóndi




Skoðun

Sjá meira


×