Fótbolti

Kári sagði Kol­bein stein­sofandi: Það versta er að þeir vissu þetta

Sindri Sverrisson skrifar
Kolbeinn Birgir Finnsson gerði slæm mistök í fyrri hálfleiknum gegn Wales og var tekinn af velli fyrir seinni hálfleikinn.
Kolbeinn Birgir Finnsson gerði slæm mistök í fyrri hálfleiknum gegn Wales og var tekinn af velli fyrir seinni hálfleikinn. vísir/Anton

Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson voru hundóánægðir með varnarleik Íslands í mörkunum sem Wales skoraði í gær, í 2-2 jafntefli liðanna í Þjóðadeildinni.

Kári og Lárus gerðu leikinn upp í uppgjörsþætti á Stöð 2 Sport og voru í hálfgerðu áfalli yfir muninum á fyrri og seinni hálfleik, en Wales komst í 2-0 í fyrri hálfleik áður en Ísland tók yfir leikinn í seinni hálfleik.

Þeir félagar voru ekkert minna vonsviknir yfir varnarleiknum í mörkum Wales þegar þeir heyrðu Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliða segja þetta:

„Við byrjuðum kannski ekkert illa, það eru bara þessi tvö móment þegar við erum ekki að ná að pressa að þá verðum við að vera klárir fyrir þessi hlaup. Við vissum alveg að þeirra „áttur“ myndu alltaf leita þangað. Það er pirrandi að við skulum ekki hafa náð að loka á það.“

„Sofandaháttur í vörninni“

Íslenska liðið vissi sem sagt vel af hættunni af því að Fulham-maðurinn Harry Wilson myndi stinga sér af miðjunni í gegnum vörn Íslands, til að taka við löngum sendingum.

„Þetta er bara sofandaháttur í vörninni. Tvisvar sinnum hjá Kolbeini [Finnssyni] í þessu fyrra marki, og einu sinni í seinna markinu. Jói minntist á það að „átturnar“ þeirra stingi sér í þessi svæði svo það var búið að vara þá við þessu. Það er það versta, þegar maður heyrir að þeir vissu nákvæmlega að þeir eru gjarnir á að gera þetta. Þá verður einhver að elta.

Auðvitað eiga hafsentarnir að vera með yfirsýn en í fyrra markinu þá voru þeir bara báðir með framherja í fanginu,“ sagði Kári.

Með hann í fanginu en leyfir honum að hlaupa

En hvað átti Kolbeinn Finnsson, vinstri bakvörður Íslands, að gera fyrst hann þarf einnig að huga að kantmanni Wales?

„Forgangssvæði hans er á milli hans og Daníels [Grétarssonar, miðvarðar]. Svæði númer tvö sem hann ber ábyrgð á er þarna fyrir utan [nær hliðarlínunni], en hann hefur svo mikinn tíma til að eiga við það að hann getur bara beðið eftir að sú sending komi. Hann þarf ekkert að vera próaktívur gagnvart því. En þessi maður [Wilson] hleypur bara af honum. Kolbeinn er með hann í fanginu en hann hleypur bara beint fyrir framan hann,“ sagði Kári og Lárus Orri bætti við:

„Markið er alltaf á sama stað. Þar er hættan og þar á hann að kovera. Kolbeinn er ekki lélegur leikmaður. Þetta eru ekki lélegir leikmenn í vörninni. En ef að fókusinn og hugarfarið hefði verið það sama í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik þá fengjum við ekki svona mörk á okkur.“


Tengdar fréttir

Bella­my skammaði blaða­menn eftir leik

Craig Bellamy þjálfari landsliðs Wales var ekki alls kostar sáttur með þá bresku blaðamenn sem mættir voru á blaðamannfund eftir jafntefli Íslands og Wales í gær. Bellamy hrósaði íslenska liðinu í hástert á fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×