Erlent

Eftir­lif­endur kjarn­orku­sprengjanna hlutu friðar­verð­laun Nóbels

Kjartan Kjartansson skrifar
Eftirlifendur kjarnorkusprengnanna halda uppi borða með hvatningu um afkjarnavopnun við sendiráð Bandaríkjanna í Tókýó þegar Barack Obama var þar í heimsókn árið 2009.
Eftirlifendur kjarnorkusprengnanna halda uppi borða með hvatningu um afkjarnavopnun við sendiráð Bandaríkjanna í Tókýó þegar Barack Obama var þar í heimsókn árið 2009. Vísir/EPA

Japönsku samtökin Nihon Hidankyo sem voru stofnuð af eftirlifendum kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fá þau fyrir baráttu sína fyrir kjarnorkuvopnalausum heimi og fyrir að sýna með eigin vitnisburði hvers vegna aldrei megi beita kjarnavopnum aftur.

Í rökstuðningi norsku Nóbelsnefndarinnar sem veitir friðarverðlaunin segir að hún hafi viljað heiðra alla eftirlifendur kjarnorkuárása Bandaríkjamanna á Japan árið 1945 sem þrátt fyrir þjáningar sínar og sárar minningar hafi valið að nýta reynslu sína til þess að veita heimsbyggðinni von og stuðla að friði. 

Störf eftirlifendanna, sem eru þekktir sem Hibakusha í heimalandi sínu, hafi átt þátt í að skapa almenna andstöðu gegn kjarnavopnum í heiminum, meðal annars með persónulegum sögum þeirra, fræðsluherferðum sem byggja á reynslu þeirra og yfirlýsingum gegn frekari dreifingu og notkun kjarnavopna.

Með störfum sínum hafi japönsku samtökin átt þátt í að viðhalda bannhelgi yfir notkun kjarnavopna allar götu síðan. Áttatíu ár séu nú liðin frá því að kjarnavopn voru síðast notuð í stríði.

Bronsstytta af leifum þríhjóls þriggja ára drengs sem lést þegar Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á Hiroshima 6. ágúst árið 1945. Drengurinn, Shinichi Tetsutani fannst illa brenndur og særður nærri þríhjólinu og lést síðar sama dag. Ljósmyndirnar sýna drenginn og leifar þríhjólsins sem er enn varðveitt á Friðarsafninu í Hiroshima.Vísir/EPA

Á sama tíma sagði nefndin það áhyggjuefni að byrjað sé að kvarnast úr þessari bannhelgi. Kjarnorkuveldin séu að uppfæra vopnabúr sín, ný lönd virðist reyna að komast yfir kjarnavopn og hótanir fljúga um notkun þeirra í stríðum sem geisa í heiminum í dag.

Talsmaður Nóbelsnefndarinnar svaraði ekki beint spurningum um hvers vegna nefindin hefði ákveðið að veita verðlaunin fyrir baráttu gegn kjarnavopnum að þessu sinni. Rússar hafa þó meðal annars ítrekað gefið í skyn að þeir gætu notað kjarnavopn í Úkraínu. Þeir hafa notað þær hótanir til þess að fæla vestræna bandamenn Úkraínumanna frá því að aðstoða þá frekar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×