Fótbolti

Åge ó­viss varðandi Albert: „Gæti verið ó­mögu­legt“

Sindri Sverrisson skrifar
Albert Guðmundsson hefur verið að spila afar vel með Fiorentina á Ítalíu. Hann kom ekki til Íslands til að vera viðstaddur dómsuppkvaðningu í dag.
Albert Guðmundsson hefur verið að spila afar vel með Fiorentina á Ítalíu. Hann kom ekki til Íslands til að vera viðstaddur dómsuppkvaðningu í dag. Getty/Rafal Oleksiewicz

Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide svaraði því ekki hvort reynt yrði að freista þess að fá Albert Guðmundsson inn í landsliðshópinn sem mætir Wales á morgun og Tyrklandi á mánudag, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Hareide sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag og fyrsta spurning var um stöðu Alberts sem fyrr í dag var sýknaður af nauðgunarákæru. Ljóst er að til að taka Albert inn í hópinn þyrfti annar leikmaður frá að hverfa, auk þess sem Albert er núna staddur á Ítalíu og rétt rúmur sólarhringur í leikinn við Wales.

„Ég hef ekki íhugað það,“ svaraði Hareide aðspurður hvort Albert yrði kallaður inn í íslenska hópinn. „Við þyrftum að tala við félagið hans og vita hvað KSÍ segir. Það gæti verið ómögulegt,“ sagði Hareide.

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, sagði þó við Vísi rétt fyrir fundinn að það væri í höndum Hareide að ákveða hvort kallað yrði í Albert núna. Reglur sambandsins kæmu ekki lengur í veg fyrir að hann spilaði fyrir landsliðið.

Albert hefur spilað þrjá leiki fyrir sitt nýja félag Fiorentina og nú þegar skorað þrjú mörk fyrir liðið. Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri gegn AC Milan um síðustu helgi.

Albert kom ekki til greina í landsliðið eftir að hann var kærður fyrir nauðgun í fyrrasumar, fyrir utan leikina tvo í EM-umspilinu í mars sem hann spilaði eftir að héraðssaksóknari hafði fellt mál hans niður skömmu fyrir leikina. Þeirri niðurstöðu var áfrýjað og var Albert þá ekki lengur gjaldgengur, samkvæmt reglum KSÍ.

Hareide var spurður hvernig honum liði með það að Albert væri nú aftur tiltækur í landsliðinu.

„Það er komin niðurstaða. Ég hef ekki hugsað mikið út í þetta, við höfum verið uppteknir við æfingar og leikurinn við Wales á hug minn allan. Við verðum að leyfa þessu að koma í ljós,“ sagði Hareide.

Hann staðfesti að allir leikmenn væru klárir í slaginn en mesta óvissan hefur verið varðandi Gylfa Þór Sigurðsson, vegna bakmeiðsla.

„Allir eru klárir í slaginn. Eini vafinn var varðandi Gylfa en hann hefur verið að æfa án vandræða. Og allir aðrir eru klárir í slaginn. Staðan er betri núna en fyrir síðustu leiki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×