Viðskipti erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur hag­fræði­verð­laun sænska seðla­bankans?

Atli Ísleifsson skrifar
Blaðamannafundurinn hefst klukkan 9:45.
Blaðamannafundurinn hefst klukkan 9:45. Vísir/Getty

Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45.

Verðlaunin teljast strangt til tekið ekki til Nóbelsverðlauna enda eru verðlaunin ekki komin frá Alfred Nobel sjálfum. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1969 og er almennt talað um þau sem hluta af Nóbelsverðlaununum.

Fréttamannafundurinn hefst klukkan 9:45 og hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér að neðan.

Banda­ríski hag­fræðingurinn Claudia Goldin hlaut hag­fræði­verð­laun sænska seðla­bankans til minningar um Al­freð Nóbel á síðasta ári fyrir rann­sóknir sínar á af­komu kvenna á vinnu­markaði.

Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlauna 2024

  • Mánudagur 7. október: Lífefna- og læknisfræði
  • Þriðjudagur 8. október: Eðlisfræði
  • Miðvikudagur 9. október: Efnafræði
  • Fimmtudagur 10. október: Bókmenntir
  • Föstudagur 11. október: Friðarverðlaun Nóbels
  • Mánudagur 14. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×