Viðskipti innlent

Upp­sagnir hjá Veitum

Atli Ísleifsson skrifar
Alls eru fastráðnir starfsmenn Veitna um 210 talsins.
Alls eru fastráðnir starfsmenn Veitna um 210 talsins. Vísir/Vilhelm

Þrettán manns var sagt upp hjá Veitum í lok septembermánaðar. Uppsagnirnar tengjast breytingum tengdum flutningi mælaþjónustu Veitna til Securitas.

RÚV greinir frá þessu í morgun. 

Greint var frá því árið 2021 að Veitur hefðu samið við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum í samningi sem metinn var á 1,8 milljarð króna.

Til stæði að skipta um 102 þúsund rafmagnsmæla, 55 þúsund varmamæla og þrjú þúsund vatnsmæla á þjónustusvæði Veitna. Með breytingunum myndu álestur viðskiptavina á mælum heyra sögunni til.

Í frétt RÚV segir að alls séu 210 fastráðnir starfsmenn hjá Veitum.


Tengdar fréttir

Veitur semja við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum

Veitur hafa samið við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum, í samning sem metinn er á 1,8 milljarð króna. Til stendur að skipta um 102 þúsund rafmagnsmæla, 55 þúsund varmamæla og þrjú þúsund vatnsmæla á þjónustusvæði Veitna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×