Íslenski boltinn

„Þessi er klár­lega mjög sér­stakur“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Titlinum fagnað
Titlinum fagnað Vísir/Pawel

„Ég er ekkert eðlileg ánægð. Búinn að vera langþráður þessi titill, ég er bara í geðshræringu, þetta er geðveikt,“ sagði Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks og Íslandsmeistari.

Breiðablik dugði jafntefli gegn Val á Hlíðarenda í lokaleik tímabilsins. Blikarnir héldu út, markalaus lokaniðurstaða og titillinn þar með tryggður.

„Við vissum að þetta yrði [erfitt], en mér fannst bara allir leikmenn stíga ógeðslega vel upp í þessum leik. Vörðumst eins og ég veit ekki hvað, fórnuðu sér allir fyrir allt þannig að við áttum þetta fyllilega skilið.“

„Ég var smá stressuð. Sótt ansi hart að okkur en Telma og varnarlínan, og bara allt liðið í heild sinni, varðist ógeðslega vel. Þetta er ótrúlega sætt svona.“

Agla hefur áður orðið Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik en segir þennan titil einn þann sætasta.

„Hann er alveg ofarlega þessi. Þetta er búið að vera struggle hjá okkur síðustu tvö ár í Breiðabliki. Að koma svona almennilega til baka er bara frábært, þetta er geggjað og þessi er klárlega mjög sérstakur.“

Fyrir ári síðan var Breiðablik langt frá því að berjast um titilinn. Nýr þjálfari tók við fyrir tímabilið og breytti miklu. 

„Það kom inn metnaður inn í félagið með hans ráðningu og Eddu [Garðarsdóttur] sömuleiðis. Fengu inn leikmenn sem vilja vinna, ég held að það sé mesta breytingin. Svo voru bara allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum.“

Hversu vel og mikið á svo að fagna titlinum?

„Mjög mikið!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×