Íslenski boltinn

Sandra María valin best

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandra María Jessen fagnar einu 22 marka sinna í Bestu deild kvenna í sumar.
Sandra María Jessen fagnar einu 22 marka sinna í Bestu deild kvenna í sumar. vísir/diego

Fyrirliði Þórs/KA, Sandra María Jessen, var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna af leikmönnum deildarinnar.

Sandra er langmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar með 22 mörk. Hún hefur skorað gegn öllum liðum deildarinnar í sumar.

Hin 29 ára Sandra fékk viðurkenningu fyrir leik Þórs/KA og Víkings í lokaumferð deildarinnar í dag. Leikurinn hófst klukkan 14:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5 og í beinni textalýsingu á Vísi.

Þetta er í annað sinn sem Sandra er valin besti leikmaður efstu deildar en hún fékk einnig þessa viðurkenningu 2018. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×