Íslenski boltinn

„Finnst yfir­leitt betra að spila fót­bolta á tánum en hælunum“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elísa Viðarsdóttir eftir bikarúrslitaleikinn þar sem Valur vann Breiðablik, 2-1.
Elísa Viðarsdóttir eftir bikarúrslitaleikinn þar sem Valur vann Breiðablik, 2-1. vísir/anton

Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, er brött fyrir úrslitaleikinn gegn Breiðabliki um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild kvenna. Hún vonast til að reynsla Valskvenna komi í góðar þarfir og að þær ætli sér að sækja titilinn fjórða árið í röð.

„Mér líður bara ótrúlega vel. Það er geðveikt að vera í þessari stöðu og mikil forréttindi. Við æfum allan veturinn til að komast í þessa leiki. Við verðum betri íþróttamenn á að stíga inn í svona leiki og takast á við þær áskoranir sem því fylgja,“ sagði Elísa í samtali við Aron Guðmundsson eftir blaðamannafund á Hlíðarenda í aðdraganda úrslitaleiksins.

„Maður þráir að fá að kljást í svona aðstæðum. Það er mikið undir og maður snertir dýpstu dali og hæstu hæðir þegar aðstæður eru svona.“

Þurfum að taka stjórn á tilfinningunum

Elísa segir að leikmenn geti farið nokkrar ferðir í tilfinningarússíbananum fyrir leiki sem þessa.

„Það getur verið það. En það er rosalega mikilvægt að geta tekið stjórn á tilfinningunum og það er það sem við reynum að gera í aðdraganda leiks. Við sem erum eldri og reyndari reynum að aðstoða yngri og óreyndari leikmenn við að kljást við þessar tilfinningar,“ sagði Elísa. 

„Við erum með ágætis hóp sem getur tekið utan um hver aðra og við hjálpum hverri annarri í gegnum dagana núna. Það verður tekist á á æfingum og þá gleymir maður öllu og svo er bara kominn laugardagur.“

Klippa: Viðtal við Elísu

Þetta verður í fjórða sinn sem Valur og Breiðablik mætast í sumar. Úrslitin í fyrstu þremur leikjunum réðust á einu marki og Elísa á von á enn einum hörkuleiknum í dag.

„Ég býst við því sama. Þessir leikir eru oft áþekkjanlegir. Við erum ekkert að spá í það hvað þær eru að gera. Við reynum bara að vera betri leik frá leik. Við spiluðum við Víking á laugardaginn og erum að reyna að bæta okkur eftir þann leik. Þannig gengur þetta viku frá viku, þetta fótboltalíf. Við búmst við hörkuleik,“ sagði Elísa.

Búnar að búa til stærsta leik ársins

Valur þarf að vinna leikinn í dag til að verða Íslandsmeistari á meðan Breiðabliki nægir jafntefli. Elísa segir að Valskonur ætli að nýta sér það í dag.

„Ef ég tala fyrir sjálfa mig finnst mér yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum og geta keyrt svolítið á þetta í staðinn fyrir að vera að passa eitthvað, ef eitthvað er að passa. Fara upp á tærnar og keyra á Blikaliðið. Það er það sem skiptir mestu máli fyrir okkur,“ sagði Elísa sem hvetur fólk til að mæta á völlinn í dag.

„Við erum búnar að búa til stærsta leik ársins og það er ekki nokkur leið að einhver sé að fara að missa af þessu.“

Viðtalið við Elísu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Leikur Vals og Breiðabliks hefst klukkan 16:15 í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 15:45.


Tengdar fréttir

Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis

Sem kunnugt er mætast Valur og Breiðablik í dag í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Þótt þessi lið hafi ekki áður mæst í úrslitaleik sem þessum voru þau bæði í baráttunni um titilinn í eftirminnilegri lokaumferð 1991. Fyrir hana gátu fjögur lið orðið meistarar og þau mættust öll innbyrðis.

Nik fullur sjálfs­trausts fyrir úr­slita­leikinn

„Fullur sjálfstrausts, við höfum spilað mjög vel síðan í byrjun ágúst,“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, fyrir lokaleik tímabilsins sem sker úr um hvort Blikar eða Valur verði Íslandsmeistari kvenna í fótbolta 2024.

Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn

Í dag mætast Valur og Breiðablik í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Valur er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari en Valskonur lögðu Blika einmitt í úrslitum Mjólkurbikarsins.

„Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“

„Mjög góða. Búnar að halda spennustiginu nokkuð vel. Erum, tilbúnar í þetta,“ sagði  Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Vals, um leik morgundagsins sem sker úr um hvort Íslandsmeistaratitillinn verði áfram á Hlíðarenda eða færi sig yfir í Kópavog.

Verður áhorfendametið slegið á morgun?

Valur og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild kvenna á morgun. Búast má við fjölmenni á leiknum á N1-vellinum á Hlíðarenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×