Lewandowski sá um Ala­vés

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lewandowski fagnar einu marka sinna í dag.
Lewandowski fagnar einu marka sinna í dag. EPA-EFE/ADRIAN RUIZ HIERRO

Framherjinn Robert Lewandowski sá til þess að Barcelona jók forskot sitt á toppi La Liga, spænsku efstu deildar karla í knattspyrnu, þegar hann skoraði þrennu í 3-0 útisigri liðsins á Deportivo Alavés. Mörkin má sjá hér að neðan.

Real Madríd vann sinn leik í gær, laugardag, og jafnaði þar með Barcelona að stigum á toppi deildarinnar. Börsungar áttu hins vegar leik til góða og unnu hann nokkuð sannfærandi.

Lewandowski skoraði fyrsta mark leiksins strax á 7. mínútu með góðum skalla eftir aukaspyrnu Raphinha.

Á 22. mínútu fóru Börsungar í skyndisókn, aftur var það Raphinha sem fann Lewandowski og aftur endaði boltinn í netinu, staðan orðin 0-2 og Alavés í vondum málum.

Á 32. mínútu fullkomnaði Lewandowski þrennu sína eftir góða sendingu Eric Garcia inn fyrir vörn Alavés. Var um að ræða tíunda mark framherjans í aðeins níu deildarleikjum til þessa.

Heimamenn minnkuðu muninn fyrir lok fyrri hálfleiks en myndbandsdómari leiksins dæmdi það af og staðan 3-0 Barcelona í vil þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. 

Þar sem ekkert var skorað í síðari hálfleik unnu Börsungar sannfærandi 3-0 sigur og eru nú með 24 stig á toppi La Liga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira