Viðskipti innlent

Sýna á­huga á eignum Skagans 3X

Telma Tómasson skrifar
Fyrirtækið Skaginn 3X var úrskurðað gjaldþrota í júlí.
Fyrirtækið Skaginn 3X var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Vísir/Arnar

Blandaður hópur fjárfesta og sérfræðinga hefur sýnt áhuga á að kaupa eignir Skagans 3X á Akranesi úr þrotabúi og hefja aftur starfsemi í bænum.

Að sögn Helga Jóhannessonar, skiptastjóra, eru menn nú vonbetri um að unnt sé að finna sameiginlegan flöt á málinu og ná farsælli lendingu eftir að Íslandsbanki eignaðist fasteignir sem áður voru í eigu Grenja.

Á fyrri stigum málsins komu fram tilboð með fyrirvara um að viðkomandi fjárfestahópar gætu fengið fasteignir keyptar eða leigðar af Grenjum, en aldrei náðist saman um það. Nú hefur Íslandsbanki eignast fasteignirnar sem breytir myndinni.

Helgi staðfestir í samtali við fréttastofu að viðræður séu í gangi við einn hóp sem hefur hug á að endurreisa fyrirtækið á Akranesi, hugsanlega ekki með jafn stórtækum hætti og það var áður rekið, en þó þannig að reksturinn haldist áfram í bænum. Ekki fæst uppgefið hverjir það eru, en um er að ræða blandaðan hóp fjárfesta og manna sem hafa reynslu af sambærilegri starfsemi.

Skaginn 3X framleiddi frysti- og kælibúnað fyrir fisk- og matvælaiðnað, bæði fyrir skip og verksmiðjur.

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness, segir í samtali við Morgunblaðið, sem fjallaði fyrst um málið, að menn séu nú að leggjast á árarnar um að bjarga starfseminni og vonir standi til að unnt sé að mynda góðan eigendahóp utan um reksturinn. Bundnar séu miklar vonir við nýja stöðu í málinu.


Tengdar fréttir

Kröfur upp á um 13 milljarða í þrota­bú Skagans 3X

Gerðar hafa verið kröfur í þrotabú Skagans 3X sem nema um þrettán milljörðum króna. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Stærstu kröfurnar í búið eru almennar kröfur sem nema um níu milljörðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Frestur til að lýsa kröfu í búið rann út á mánudag í þessari viku.

Tilboð berast í eignir þrotabúsins: „Alltaf með símann opinn ef menn hafa áhuga“

Borist hafa nokkur tilboð í ýmsar eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi sem verið er að yfirfara og bera saman. Ekkert nýtt tilboð hefur borist í allar eignir þrotabúsins í heilu lagi síðan ljóst varð að slíkt tilboð sem var til skoðunar næði ekki fram að ganga. Skiptastjóri segir fasteignirnar sem hýst hafi starfsemi fyrirtækisins vera þrotabúinu óviðkomandi þótt þær hafi verið forsenda í tilboðinu sem ekki varð að veruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×