Fótbolti

Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Aþena er í efstu deild í fyrsta sinn og byrjar vel.
Aþena er í efstu deild í fyrsta sinn og byrjar vel. Vísir / Hulda Margrét

Nýliðar Bónus deildar kvenna, Aþena og Tindastóll, mættust í fyrstu umferð. Þar fór heimaliðið Aþena með öruggan tuttugu stiga sigur, 86-66.

Liðin mættust í úrslitaeinvígi 1. deildarinnar á síðasta tímabili, sem Aþena vann 3-1, Tindastóll fékk síðan sætið sem Fjölnir lét eftir.

Lið Aþenu hefur engu gleymt á undirbúningstímabilinu og var mun sterkari aðilinn í kvöld. Fyrsti leikhluti hélst jafn en eftir það var leikurinn í eigu Aþenu.

Hanna Þráinsdóttir varð stigahæst með 19 stig, auk 6 frákasta og 2 stoðsendinga. Stigasöfnunin dreifðist annars nokkuð jafnt og Aþena fékk framlag úr öllum áttum, 33 stig komu frá varamönnum.

Í liði Tindastóls bar Randi Brown sóknarleikinn á herðum sér og skoraði 26 stig.

Bónus Körfuboltakvöld í umsjón Harðar Unnsteinssonar er á dagskrá Stöðvar 2 Sport eftir hverja umferð, þar er farið yfir alla leikina og rýnt í deildina með vel völdum sérfræðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×