Viðskipti innlent

Ekki úti­lokað að stýrivextir lækki

Jón Ísak Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Egill

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Hann spáir þó óbreyttum vöxtum en segir styttast í lækkun þeirra.

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnir stýrivaxtaákvörðun sína klukkan hálf níu í fyrramálið, og verður blaðamannafundurinn í beinni útsendingu á Vísi.

Vextirnir hafa staðið óbreyttir síðan í ágúst í fyrra og bíða margir í ofvæni eftir því að þeir lækki á ný. Sérfræðingar stóru bankanna hafa ekki verið alltof bjartsýnir á lækkun vaxta.

„Ég á von á því að peningastefnunefndin haldi vöxtum óbreyttum, en ég yrði hissa ef þau myndu ekki opna á það að það sé að styttast í lækkun vaxta. Það er í rauninni innistæða fyrir því að breyta kúrsinum miðað við hvernig þróunin hefur verið undanfarnar vikur,“ segir Jón.

Verðbólgan hafi minnkað hraðar en flestir bjuggust við og álag á markaði hafi farið niður. Eitt og annað hafi dottið með Seðlabankanum.

Það bendir allt til þess að þeir verði þeir sömu, en eru einhverjar líkur á að þeir muni lækka vextina eins og margir bíða eftir?

„Það er ekki útilokað. Allir sem að gefa út opinberar spár hafa reyndar spáð óbreyttum vöxtum, en á markaði eru greinilega skiptar skoðanir og þá er kannski nærtækt að horfa til Bandaríkjanna í aðdraganda að vaxtalækkun þar um daginn þar sem flestir kollegar mínir spáðu smáu skrefi, en markaðirnir höfðu rétt fyrir sér og það var tekið stærra skref heldur en almennt hafði verið spáð,“ segir Jón.

Hann útiloki því ekkert, en verði ekki farið í vaxtalækkun á morgun séu teljandi líkur á því að stigið verði stærra skref í nóvember en búist væri við. „Kannski hálf prósenta, sú stærðargráða eða þvíumlíkt,“ segir Jón.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×