Skoðun

Er padda í vaskinum?

Vilborg Gunnarsdóttir skrifar

Íslenskt samfélag er stundum svo „öðruvísi“. 

Undanfarið hafa verið fluttar fréttir af skorti á eftirliti til dæmis á vinnusvæðum og nú síðast berast fréttir af hræðilegu vinnumansali. Hvernig má það vera?

Þegar kemur að hvers konar eftirliti förum við ýmist í ökkla eða eyra. Nýlega heyrði ég viðtal við konu sem á breskan tengdason sem starfar við vinnueftirlit í Bretlandi. Hann hafði verið hér á ferð, litið við á nokkrum byggingavinnusvæðum og gekk svo langt að segja að í Bretlandi hefði mörgum þeirra verið lokað. Ekki þarf að rifja upp hér hversu mörg alvarleg slys hafa verið á slíkum svæðum undanfarin ár. Það er eitthvað brogað við vinnuverndarlöggjöfina og greinilegt að auka þar kröfur og í kjölfarið, eftirlit með þessum vinnusvæðum.

Eigum við að nefna heilbrigðiskerfið sem er eitt það fjárfrekasta í íslensku samfélagi? Þar er nánast ekkert eftirlit haft með þeim fjármunum sem renna til hinna ýmsu stofnana.

Reglulega fáum við líka fréttir af illri meðferð á dýrum. Þá hefur MAST stundum brugðist bogalistin við eftirlit af þeirra hálfu þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um slæman aðbúnað dýra.

Nýjasta dæmið er vinnumansalið. Kveikur tók nokkur dæmi um ömurlegar aðstæður og brot á erlendu vinnuafli. Upplýsingarnar sem komu fram í þættinum voru sláandi. Það sem slær mig núna er að verkalýðshreyfingin segist ekki hafa burði til að bregðast við. Hverjir eiga þá að gera það?

Við borgum okkar stéttarfélagsgjöld hvort sem við viljum vera í félagi eða ekki. Þau hafa þann eina tilgang að gæta hagsmuna vinnandi fólks. Ekki bara þegar kemur að launum og vinnutíma. Þau sinna til dæmis erindum félagsmanna sem telja að brotið hafi verið á sér í formi eineltis og áreitis sem er vitaskuld mjög gott og mikilvægt að sé gert. Hvers vegan ekki í tilfelli þeirra brota sem við sáum dæmi um í Kveik?

Ein er þó sú stofnun sem stendur sig þegar kemur að eftirliti en það er Heilbrigðiseftirlitið. Þar er fylgst með því hvort ekki séu vaskar út um allt og að ekki séu pöddur í vaskinum. Gott hjá þeim!

Höfundur er áhugamaður um almenna velferð.




Skoðun

Sjá meira


×