Innlent

Bein út­sending: Ráð­stefna ASÍ og SA um vinnuman­sal á Ís­landi

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur af erindum, pallborðsumræðum og málstofum.
Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur af erindum, pallborðsumræðum og málstofum. Vísir/Vilhelm

Ráðstefna Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um vinnumansal á Íslandi fer nú fram í Hörpu en dagskráin hefst klukkan tíu og stendur til klukkan fjögur seinnipartinn.

Hægt er að fylgjast með fyrri hluta dagskrár ráðstefnunnar í beinu streymi hér fyrir neðan.

„Undanfarin misseri hafa komið upp á yfirborðið nokkur mál á íslenskum vinnumarkaði sem sýna að vinnumansal þrífst í íslensku samfélagi. Hver er ábyrgð samfélagsins og hvernig getum við komið í veg fyrir vinnumansal? Hvernig gengur okkur að vernda þolendur vinnumansals?“ segir í kynningartexta um ráðstefnuna.

Dagskráin samanstendur af erindum, pallborðsumræðum og málstofum. Fulltrúar úr verkalýðshreyfingunni, atvinnulífinu, fræðasamfélaginu og frá opinberum stofnunum taka þátt með kynningum og umræðum. 

Dagskrá

9.30-10.00 Skráning og kaffi bíður á borðum

10.00-10.30 Opnun og umræður

  • Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra

10.30-11.15 Addressing Labour Exploitation in the Nordic Countries: What Are the Differences and Why is Finland Ahead of the Rest?

  • Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI, evrópskrar rannsóknarstofnunar sem starfar undir finnska dómsmálráðuneytinu

11.15-11.45 Hvernig komum við í veg fyrir vinnumansal? Pallborð

  • Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI
  • Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA
  • Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ASÍ
  • Heimir Guðmundsson, sviðsstjóri vinnuverndar, Vinnueftirliti ríkisins

11.45-12.15 Siðferðisleg ábyrgð samfélagsins í stóru samhengi

  • Henry Alexander Henrysson, heimspekingur

12.15-13.15 Hádegisverður

13.15-14.15 Málstofur I

Er vinnumansal fylgisfiskur fólksflutninga? Innflytjendur og inngilding

  • Málstofustjóri: Guðrún Margrét Guðmundsdóttir
  • Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu, ASÍ
  • Hallfríður Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Mirru, fræðslu- og rannsóknarseturs
  • Sandra Björk Bjarkadóttir, mannauðs- og jafnréttissérfræðingur, Samkaup
  • Sabine Leskopf, borgarfulltrúi, Reykjavíkurborg

Ábyrgð fyrirtækja í virðiskeðjunni

  • Málstofustjóri: Heiðrún Björk Gísladóttir
  • Andri Reyr Haraldsson, formaður Félags íslenskra rafvirkja
  • Gunnar S. Magnússon, yfirmaður sjálfbærni og loftlagsmála hjá Deloitte á Íslandi
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs, Samtökum iðnaðarins

Eftirlit á vinnumarkaði – framkvæmd og reynsla í nútíð og framtíð

  • Málstofustjóri: Benóný Harðarson
  • Adam Kári Helgason, eftirlitsfulltrúi hjá Húsi fagfélaganna
  • Axel Ólafur Pétursson, sérfræðingur á sviði vinnuverndar, Vinnueftirliti ríkisins
  • Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA
  • Tania D. Ellifson, verkefnisstjóri atvinnuréttinda hjá Vinnumálastofnun

14.15-14.30 Kaffihlé

14:30-15:30 Málstofur II

Vernd og þjónusta við þolendur vinnumansals

  • Málstofustjóri: Björg Bjarnadóttir
  • Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, verkefnastjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar
  • Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
  • Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar
  • Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar

Rannsókn og saksókn vinnumansalsmála

  • Málstofustjóri: Mirabela Blaga
  • Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum
  • Hildur Sunna Pálmadóttir, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
  • Natalia Ollus, forstöðukona HEUNI
  • Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
  • Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík

Hver má vinna á Íslandi? Kostir og gallar við núverandi löggjöf um atvinnuleyfi

  • Málstofustjóri: María Guðjónsdóttir
  • Bryndís Axelsdóttir, lögfræðingur og deildarstjóri atvinnuréttinda erlendra starfsmanna
  • Halldór Oddsson, sviðsstjóri lögfræði- og vinnumarkaðssviðs ASÍ
  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Lilja Björk Guðmunsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins

15.30 Ráðstefnulok




Fleiri fréttir

Sjá meira


×