Handbolti

Hörmu­legur seinni hálf­leikur varð þýsku meisturunum að falli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú fyrir Magdeburg.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú fyrir Magdeburg. Marco Wolf/Getty Images

Þýskalandsmeistarar Magdeburg, með landsliðsmennina Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs, máttu þola sitt fyrsta tap á tímabilinu er liðið tók á móti Kiel í þýska handboltanum í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi framan af og munaði aðeins einu marki á liðinu þegar flautað var til hálfleiks í stöðunni 15-16.

Heimamenn í Magdeburg átti hins vegar í stökustu vandræðu með að finna taktinn í síðari hálfleik og skoruðu aðeins þrjú mörk á fyrstu 18 mínútum seinni hálfleiksins. Liðinu tókst aldrei að brúa bilið eftir það og þurfti að lokum að sætta sig við fimm marka tap, 24-29.

Ómar Ingi og Gísli Kristján skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Magdeburg sem situr í áttunda sæti þýsku deildarinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki.

Þá hafði Leipzig betur í Íslendingaslag dagsins er liðið tók á móti Gummersbach, 34-29. Andri Már Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Leipzig, en Rúnar Sigtryggsson, faðir Andra, er þjálfari liðsins. 

Elliði Snær Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummarsbach, en Teitur Örn Einarsson komst hins vegar ekki á blað.

Í Ungverjalandi halda Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged sigurgöngu sinni áfram, en liðið vann níu marka sigur gegn Balatonfurendi í dag, 37-28 og í Noregi eru Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson, Sveinn Jóhannsson og félagar í Kolstad einnig með fullt hús stiga eftir 24-35 sigur gegn Fjellhammer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×