Innlent

Brynjar snýr sér að mann­réttinda­málum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Brynjar hefur sagt af sér varaþingmennsku og mun að öllum líkindum taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar.
Brynjar hefur sagt af sér varaþingmennsku og mun að öllum líkindum taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar. Vísir/Vilhelm

Brynjar Níelsson mun taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar, nái tillaga þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins að ganga. Brynjar sagði af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn í dag. 

„Ég ræddi við Brynjar í síðustu viku,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, um þessi tíðindi, sem óhætt er að segja að mörgum hafi þótt nokkuð óvænt. Hún segir Brynjar hafa verið boðinn og búinn til að taka verkefnið að sér.

„Auðvitað stöldruðum við við það sem segir í lögunum um að þingmenn megi ekki sitja í stjórninni. Fyrir mitt leyti er varaþingmennska ekki það sama og að vera þingmaður. En nú þegar hann hefur sagt af sér varaþingmennsku þá er algjörlega hafið yfir vafa réttmæti þess að hann geti setið í þessari stjórn,“ segir Hildur.

Stjórnarflokkarnir fái einn mann hver

Stjórn Mannréttindastofnunar er skipuð fimm manns, eftir tillögum flokkanna á Alþingi. 

„Ég hef tilkynnt um þá tillögu mína að fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins sitji þar Brynjar Níelsson, enda fáir með jafn víðtæka reynslu af því að verja réttindi borgaranna og Brynjar. Það fer því fel á því að mínu viti að hann setjist fyrir hönd flokksins í þessa stjórn.“

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir missi af Brynjari. Þó sé gleðilegt að hann sé til í að taka að sér hið nýja verkefni.Vísir/Vilhelm

Hildur segir að enn eigi eftir að setjast yfir hvaða flokkar fái tillögur sínar um stjórnarmenn samþykktar.

„Þetta fer iðulega í svokallaða D'Hondt-reglu. Þá er þumalputtareglan sú að stjórnarflokkarnir væru með einn fulltrúa hver og stjórnarandstaðan tvo. Mér þykir líklegt að það verði uppleggið, en ítreka að þetta á eftir að formgera endanlega. En mér þykir rétt að ég hef gert að tillögu minni að Brynjar verði okkar fulltrúi,“ segir Hildur. 

Missir af kærum vini úr liðinu

Hún hafi hringt í Brynjar í morgun til að fá staðfest að hann væri enn til í að taka sæti í stjórninni.

„Hann er  aldeilis til í það. Ég fagna því, og þrátt fyrir að það sé missir af okkar kæra vini, svona formlega, úr liðinu, þá er hann ennþá í verkefnum fyrir okkur. Ég er bara mjög þakklát og glöð með það.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×