Íslenski boltinn

„Ég á Ís­landi líf mitt að þakka“

Aron Guðmundsson skrifar
Gary Martin, sem kom hingað til lands árið 2010 og hefur nánast verið hér síðan þá, er nú á heimleið til Englands.
Gary Martin, sem kom hingað til lands árið 2010 og hefur nánast verið hér síðan þá, er nú á heimleið til Englands. Vísir

Eftir rúman áratug hér á landi er komið að kveðjustund hjá Gary Martin sem hefur sett svip sinn á íslenska boltann. Gary kveður land og þjóð með trega en hann er fullviss um að snúa aftur hingað til lands einn daginn.

Gary kom hingað til lands árið 2010 sem ní­tján ára strákur frá Darlington á Eng­landi með stóra drauma um að verða at­vinnu­maður í knatt­spyrnu. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og er Gary reynslunni ríkari eftir tíma sinn hjá liðum á borð við ÍA, KR, Val og ÍBV.

„Ég tók þetta bara ár frá ári,“ segir Gary í viðtali við íþróttadeild Stöðvar 2. „Þegar ég var yngri var ég mjög metnaðar­fullur. Vildi byrja á Ís­landi en fara svo lengra og hærra á mínum ferli. Það gekk ekki eins hratt fyrir sig og ég hefði viljað en ég náði þó þangað á endanum. En því meiri tíma sem ég varði hér á Ís­landi því meira leið mér eins og ég ætti heima hérna. Ég naut þess að vera hér. Var ekkert að flýta mér að komast héðan. Fjór­tán ár hafa liðið hratt hjá.“

Hvernig leist þér á það á sínum tíma að koma hingað til lands til þess að spila fótbolta?

„Ég þekkti ekkert annað en fótbolta. Þetta var í raun eina tilboðið sem ég var með á borðinu. Það var annað hvort að koma hingað til lands eða reyna fyrir mér í neðri deildum Englands. Mér stóð til boða að koma hingað á sex vikna samningi og ég er þannig úr garði gerður að vera til í að stökkva á slík ævintýri. Það myndi ekki saka að prófa. 

Gary Martin mætti til Íslands og lét til sín taka með liði Skagamanna. Átti stóran þátt í því að koma liðinu aftur upp í efstu deild. Eftir það lá leiðin bara upp á við.Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Ég stökk því á þetta og komst fljótt að því að íslenski boltinn hentaði mér mjög vel. Mér gekk vel og ég hafði það markmið eitt að sýna öllum hversu góður ég væri í fótbolta. Mér fannst ég þurfa að sanna mig eftir að hafa verið látinn fara frá Middlesborough því mér fannst ég ekki eiga það skilið að hafa verið látinn fara. Ég horfði á skrefið til Íslands sem síðasta tækifærið mitt til þess að láta eitthvað verða úr ferlinum“

Er enginn Valsari

Sem leik­maður hér á landi í yfir ára­tug hefur Gary Martin unnið alla titla sem hægt er að vinna sem leik­maður liðs í efstu deild. Hann gull­tryggði KR Ís­lands­meistara­titilinn árið 2013 með tvennu gegn erki­fjendunum í Val á Hlíðar­enda. Í leik sem er einn þeirra sem stendur upp úr á ferlinum en Gary átti seinna á ferlinum eftir að ganga til liðs við Val en þar átti hann ekki eftir að staldra lengi við. Meira um það síðar.

„Það er ekki til sá staður sem er sætara að tryggja Ís­lands­meistara­titilinn en heima­völlur Vals. Ég skoraði bæði mörk leiksins og í raun eru þeir tveir leikir sem standa upp úr á ferli mínum hér báðir á móti Val. Þeir hefðu aldrei átt að semja við mig. Ég er enginn Val­sari.“

Alltaf til í snúa aftur hingað

Í gegnum öll þessi ár hér á landi hefur Gary heillast af ís­lenskri þjóð og veran hér á landi hefur farið fram úr hans björtustu vonum.

„Ég á Ís­landi líf mitt að þakka. Allt sem ég á er Ís­landi að þakka. Allt sem ég hef af­rekað. Þess vegna er ég alltaf til í að snúa hingað aftur. Hvort sem það er sem leik­maður eða þjálfari. Ég tel að ég muni snúa aftur hingað til lands einn daginn. Þetta er besta landið sem ég hef búið á. Ég myndi setja það framar Eng­landi þegar kemur að því að kalla eitt­hvað mitt heimili.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×