Innlent

Skipun um að hætta við brott­flutning Yazan kom frá dóms­mála­ráð­herra

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir virðist hafa fyrirskipað að hætt yrði við brottflutning Yazan.
Guðrún Hafsteinsdóttir virðist hafa fyrirskipað að hætt yrði við brottflutning Yazan.

Hætt var við brottflutning Yazan Tamimi frá Íslandi í nótt. Skipunin um að hætta við kom frá dómsmálaráðherra, að sögn Marínar Þórsdóttur verkefnisstjóra hjá heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra.

Marín segir beiðni um brottflutning hafa legið fyrir í nokkurn tíma en bendir á ráðuneytið varðandi aðrar upplýsingar.

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Yazan sé kominn á Barnaspítala Hringsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×