Lífið

Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu

Ólafur Björn Sverrisson og Lovísa Arnardóttir skrifa
Lísbet og Erpur njóta lífsins um þessar mundir á Ítalíu.
Lísbet og Erpur njóta lífsins um þessar mundir á Ítalíu. facebook/vísir

Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson nýtur nú lífsins á Ítalíu með nýju kærustunni sinni, Lísbetu Rós Ketilbjarnadóttur. 

Erpur greindi frá því í ágúst í viðtali á útvarpsstöðinni K100 að hann ætti kærustu en þó án þess að nafngreina Lísbetu. Í samtali við Vísi vildi hann lítið segja frá ástinni nýju en nú Erpur er ófeiminn við að sýna frá ferðalagi þeirra á Ítalíu. 

Í gær birti hann myndir í hringrásinni af sér og Lísbetu. Það gerði hún líka. Á einni þeirra segir vinur þeirra Erp „hinn fullkomna Instagram-kærasta“. Á myndinni er Erpur að taka mynd af Lísbetu og endurbirtu þau bæði myndina á Instagram-reikningi hvors annars.

Það er vitaskuld hlutverk góðs kærasta að vera tilbúinn í langar og strangar myndatökur. Erpur er greinilega til í slaginn.instagram
Parið nýja í öllu sínu veldi.instagram

Lísbet Rós lærði hönnun í IED í Barcelona. Í sumar var viðtal við hana á vef Heimildarinnar þar sem hún var viðstödd mótmæli við þinghúsið vegna átaka á Gasa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.