Innlent

Vaktin: Eld­gos hafið

Lovísa Arnardóttir, Eiður Þór Árnason og Kjartan Kjartansson skrifa
Ljósmynd tekin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í nótt.
Ljósmynd tekin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í nótt. Almannavarnir

Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að  öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar.

Hraunflæðið náði síðar jafnvægi. Sýndu niðurstöður úr fyrsta vísindafluginu yfir gosið að hraunflæði væri um 1.200 til 1.500 rúmmetrar á sekúndu og gossprungan tæpir fjórir kílómetrar að lengd. 

„Ég held að þetta sé bara svipaður hraði og við höfum verið að sjá í byrjunarfasa á þessum gosum. Þetta ætti svosem ekkert að koma okkur á óvart,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnarsviðs hjá ríkislögreglustjóra. Líkur eru taldar á því að hraun nái að Grindavíkurvegi en hraun rennur ekki í átt að Grindavík. Engar truflanir hafa verið á starfsemi orkuversins í Svartsengi. 

Eftir klukkan eitt kom í ljós að ný sprunga hafði opnast fyrir norðan nyrsta endann á sprungunni þar sem gosið hófst og var sú nýja um það bil einn kílómetri að lengd. Enn sem komið er virtist vera lítil virkni á nýju sprungunni.

Skjálftavirkni hefur verið áframhaldandi í alla nótt og aflögun í gangi. Mældist skjálfti að stærð 4,1 norður af Stóra-Skógfelli um klukkan 22:37. Skjálftinn er sá stærsti sem hefur mælst frá því í desember. Varað er við mikilli gasmengun nærri gosinu.

Öll nýjustu tíðindi má sjá í vaktinni hér að neðan. Endurhlaðið síðunni ef vaktin birtist ekki strax. Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×