Frakkar og Danir í undanúrslit Valur Páll Eiríksson skrifar 6. ágúst 2024 13:35 Þær frönsku fögnuðu vel enn einum sigrinum á ÓL. Getty Frakkland og Danmörk komust í undanúrslit í handbolta kvenna á Ólympíuleikunum. Danmörk mætir að líkindum Noregi, sem leikur undir stjórn Þóris Hergeirssonar.
Danmörk mætti Hollandi snemma í morgun en þær hollensku hófu leikinn umtalsvert betur. Liðið skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins og var með forystuna lengst af fyrri hálfleik. Í stöðunni 7-3 fyrir Holland snerist leikurinn hins vegar. Danmörk skoraði átta mörk gegn þremur og leiddi 11-10 í hálfleik. Þær dönsku gerðu það sama og þær hollensku í fyrri hálfleiknum eftir hlé. Danmörk skoraði fyrstu fjögur mörk hálfleiksins og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Danmörk vann 29-25 og mætir annað hvort Noregi eða Brasilíu í undanúrslitum. Þau lið mætast í kvöld. Danskar unnu góðan sigur á Hollandi.Getty Heimakonur í Frakklandi tryggðu einnig sæti sitt í undanúrslitum. Frakkland er eina liðið á leikunum sem hefur unnið alla leiki sína og dróst gegn þýsku landsliði sem hafði aðeins unnið einn leik af fimm í riðlakeppninni. Frakkland komst snemma 9-3 yfir og þrátt fyrir að Þýskaland hafi svarað með 7-1 kafla og tekist að jafna 15-15 í seinni hálfleiknum var sigur þeirra frönsku aldrei í hættu í kjölfarið. Liðið vann forskot sitt upp í þrjú mörk og það hélst til loka. 26-23 úrslit leiksins, Frakklandi í vil. Seinni partinn mætast Ungverjaland og Svíþjóð og mun sigurvegari þess leiks mæta Frökkum í undanúrslitum.
Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Orri Steinn spilaði ekki í jafntefli gegn Atl. Madríd Fótbolti Fleiri fréttir Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum Sjá meira