Lífið

Svarar ekki sím­tölum sonarins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Samband Harry við Vilhjálm og Karl hefur verið stirt undanfarin ár.
Samband Harry við Vilhjálm og Karl hefur verið stirt undanfarin ár. EPA-EFE/FACUNDO ARRIZABALAGA

Karl Bretakonungur svarar ekki símtölum yngri sonar síns Harry Bretaprinsar. Feðgarnir hafa lítið sem ekkert talað saman undanfarið og ekki sést síðan í febrúar síðastliðnum þegar Karl tilkynnti heimsbyggðinni að hann væri með krabbamein.

Þetta er fullyrt í breska götublaðinu The Sun. Þar er haft eftir ónefndum heimildarmanni sem fullyrt er að sé vinur Harry að ekkert gangi hjá prinsinum að bæta samband sitt við föður sinn. Líkt og flestir vita hefur Harry undanfarin ár búið í Kaliforníu ásamt eiginkonu sinni Meghan Markle og börnum þeirra tveimur.

„Símtölum hans er ekki svarað, hann hefur reynt að ná í konunginn og ræða heilsu hans, en þeim símtölum er líka ósvarað,“ hefur götublaðið eftir ónefndum heimildarmanninum. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að Harry og Meghan stefni á að fara í heimsókn til Kólumbíu síðar á árinu.

Þar segir að Harry óttist hinsvegar öryggi sitt. Hann stendur enn í málaferlum gegn breskum yfirvöldum eftir að hafa verið sviptur sérstakri vernd sem konungsfjölskyldunni er veitt. Harry hefur farið fram á að fá öryggisverði aftur sem greiddir eru af breska ríkinu, án árangurs.

Á milli steins og sleggju

Fullyrt er í umfjöllun breska götublaðsins að Meghan Markle myndi helst af öllu vilja að Harry léti af málaferlum sínum vegna málsins. Það komi hinsvegar ekki til greina af hálfu prinsins þar sem það varði öryggi fjölskyldunnar.

Þá segir í umfjöllun blaðsins að málaferlin séu það helsta sem hafi komið í veg fyrir að prinsinn og konungurinn nái sáttum. „Harry óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar og hann telur að sá eini sem geti gert eitthvað í málunum sé faðir hans. Hann er staðráðinn í því að verja fjölskyldu sína,“ hefur blaðið eftir vini prinsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.