Tryggði Víkingum endurkomusigur gegn gamla liðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. júlí 2024 20:00 Shaina Ashouri var á skotskónum gegn FH, liðinu sem hún lék með í fyrra og hitteðfyrra. vísir/diego Shaina Ashouri skoraði tvö mörk þegar Víkingur vann FH, 3-2, í 15. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Víkingar lentu 0-2 undir en komu til baka og tryggðu sér sigurinn.
Víkingur hefur nú fengið sjö stig í síðustu þremur leikjum og er í 4. sæti deildarinnar. FH, sem hefur tapað fjórum leikjum í röð, er í 5. sætinu. Eftir 21 mínútu í votviðrinu í Víkinni náði FH forystunni þegar Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoraði fjórða mark sitt í sumar. Á 34. mínútu tvöfaldaði Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir forystu FH-inga þegar hún skoraði eftir sendingu frá Thelmu Karenu Pálmadóttur. Á lokamínútu fyrri hálfleiks minnkaði Linda Líf muninn fyrir Víking í 1-2 þegar hún fylgdi eftir skoti Bergþóru Sólar Ásmundsdóttur sem Aldís Guðlaugsdóttir varði. Strax á upphafsmínútu seinni hálfleiks jafnaði Shaina metin í 2-2 þegar hún skoraði gegn sínum gömlu félögum í FH. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka skoraði Shaina svo sigurmark Víkinga eftir sendingu frá Emmu Steinsen Jónsdóttur. Lokatölur 3-2, Víkingi í vil og þær rauðu og svörtu búnar að koma sér vel fyrir í efri hluta deildarinnar.
Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík FH Mest lesið Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Íslenski boltinn Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Íslenski boltinn „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Íslenski boltinn Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Enski boltinn Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Alfreð kom öllum á óvart með vali sínu Handbolti Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum Íslenski boltinn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Afturelding - Víkingur | Verða gestirnir einir með fullt hús stiga? Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Sjáðu hetjumark Höskuldar, kvartettinn í Kaplakrika og öll hin frá því í gær Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar „Ég fer bara sáttur á koddann“ Uppgjörið: ÍA - Vestri 0-2 | Taplausir Vestramenn sóttu sigur á Skagann „Gæti vel verið en það er bara fókus á næsta leik“ Uppgjörið: FH - KR 2-2 | Bæði lið enn án sigurs Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Jónatan Ingi sýndi sínar bestu hliðar í fyrsta sigri Vals Þórdís Hrönn með stoðsendingu fyrir sjötta félagið í efstu deild „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Sjá meira