Lífið

„Hugsuðum hver and­skotinn væri í gangi“

Eiður Þór Árnason skrifar
„Okkur var brugðið og hugsuðum hver andskotinn væri í gangi,“ segir Ladislav Carda sem sést hér ásamt Lucie Surovcova.
„Okkur var brugðið og hugsuðum hver andskotinn væri í gangi,“ segir Ladislav Carda sem sést hér ásamt Lucie Surovcova. Misha Martin

Eftir langan undirbúning og mikla eftirvæntingu var senn komið að því. Ladislav Carda og Lucie Surovcova komu til landsins frá Tékklandi á föstudag og ætluðu að gifta sig í Reynisfjöru tveimur dögum síðar.

Tilvonandi brúðhjón voru stödd við Skógafoss um klukkan fjögur á laugardag. Allt virtist til reiðu og búið að strika út flest atriði af verkefnalistanum þegar tvær tilkynningar birtust á símanum.

„Ég sá tölvupóst frá Tinnu með hlekk á frétt um að jökulhlaup væri hafið.“ Þetta var ekki á listanum.

Þar er um að ræða Tinnu Jóhannsdóttur, athafnastjóra hjá Siðmennt sem átti að gefa þau saman innan við sólarhring síðar. Búið var að loka hringveginum frá Vík að Kirkjubæjarklaustri og ört vaxandi jökuláin Skálm skildi parið og Tinnu að. Hún var þá á Höfn á Hornafirði og sá ekki fram á að komast til Víkur eða í Reynisfjöru í bráð.

„Seinni pósturinn var frá ljósmyndaranum okkar sem spurði bara: „Hvorum megin við hlaupið eruð þið?“ og með fylgdi broskarl.“

„Svo okkur var brugðið og hugsuðum hver andskotinn væri í gangi,“ bætir Ladislav við og hlær.

Óvissan ríkti þrátt fyrir það ekki lengi þar sem Tinna tjáði þeim að annar athafnastjóri gæti hlaupið í skarðið. Þetta var Margrét Gauja Magnúsdóttir sem á venjulegum degi væri stödd heima í Hafnarfirði en hafði gert sér ferð til foreldra sinna í Grímsnesi til að geta gefið saman önnur hjón í Múlagljúfri.

Reynisfjara er einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins og höfðu hjónin séð fyrir sér að láta gifta sig við stuðlabergið í fjörunni.Vísir/Vilhelm

Of mikið af fólki í Reynisfjöru

Ladislav og Lucie þurftu ekki lengi að hugsa sig um og samþykktu að Margrét tæki við athöfninni. Eftir að hafa skoðað Skógafoss og svarað tölvupóstunum fóru þau í Reynisfjöru þar sem til stóð að gefa þau saman klukkan 12 daginn eftir. 

Þau sáu nokkra mannmergð í fjörunni og fengu upplýsingar um að hið sama yrði líklega uppi á teningnum þegar athöfnin færi fram. Í kjölfarið tóku þau þá ákvörðun á síðustu stundu að færa athöfnina úr Reynisfjöru og á veitingastaðinn Ice Cave Bistro sem stendur við fjöruna í Vík. Að henni lokinni yrði svo gengið út í svarta sandinn í bakgarðinum.

„Við vorum taugaóstyrk kvöldið áður út af staðsetningunni, óvissu með hvað myndi gerast og það var von á rigningu. Ein spáin sagði 100 prósent líkur á rigningu í Vík í hádeginu þegar athöfnin átti að fara fram,“ segir Ladislav.

Lucie Surovcova kom áður til Íslands árið 2018. Hún segist snemma hafa fallið fyrir landinu. Misha Martin

„Guð minn góður“

Dagurinn sjálfur gekk þó eins og í sögu og var þurrt til klukkan 14 þegar nýgiftu hjónin voru komin alsæl á gististaðinn sinn. Þau segja þetta hafa verið ógleymanlega upplifun.

„Guð minn góður, þetta var það sem við vildum. Að hafa giftingu í næði en á sama tíma streymdum við allri athöfninni til fjölskyldu okkar á Youtube. Við vorum með hljóðnema á okkur og þau heyrðu og sáu allt. Þetta var virkilega yndisleg stund, þrjátíu mínútur af gleði,“ segir Ladislav.

„Ég hefði ekki getað ímyndað mér það í mínum villtustu draumum hversu fallegt þetta yrði, hversu gott andrúmsloftið yrði, og bara allt,“ bætir Lucie við.

Varð ástfangin á gönguskíðum

Þegar fréttamaður ræddi við hjónin um sólarhring síðar eru þau enn í skýjunum og á leið til Vestmannaeyja að sjá lunda. En hvers vegna völdu þau að gera sér ferð til Íslands?

Lucie segir að í fyrsta lagi hafi hún ekki viljað gifta sig í heimalandinu Tékklandi eða í kirkju. Þetta er önnur ferðin hennar til Íslands en hún kom fyrst árið 2018 og fór á gönguskíði í Eyjafirði, á Ísafirði og heimsótti svo meðal annars Vík í Mýrdal. Þá var ekki aftur snúið.

„Ég var ástfangin í tvær vikur,“ segir hún um fyrstu upplifun sína af Íslandi. „Þetta er ótrúlegur staður og mjög falleg náttúra.“ Einnig þyki henni sjálfbærnivegferð Íslendinga mikilvæg og merkileg en þau hafa bæði kynnt sér íslenska orkuframleiðslu.

Margrét Gauja Magnúsdóttir ásamt brúðhjónunum. Hún stökk til þegar jökulhlaupið úr Mýrdalsjökli hindraði för athafnastjórans sem átti að gefa þau saman.Misha Martin

Þakklát öllum sem komu að athöfninni

Hjónin segja að draumur þeirra hafi ræst og þau vilji sérstaklega þakka Tinnu og Margréti hjá Siðmennt og ljósmyndaranum Misha Martin fyrir aðstoðina, góðvildina, liðleikann og góða upplýsingagjöf. Saman hafi þau passað að þeim liði vel og hjálpað að róa taugarnar þegar á þurfti að halda.

„Það var alveg ótrúlegt,“ segir Lucie. Hjónin gerðu sér ein ferð til Íslands á meðan fjölskylda og vinir fylgdust með athöfninni í gegnum netið.

Eftir dagsferð í Heimaey hyggjast Lucie og Ladislav fara Gullna hringinn áður en þau gera sér ferð norður á land. Þau yfirgefa Ísland á föstudag eftir viðburðaríka viku á Fróni þar sem náttúruöflin geta alltaf skorist í leikinn.

Ladislav Carda og Lucie Surovcova fara af landi brott á föstudag.Misha Martin





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.