Innlent

Kourani tekur upp ís­lenskt nafn

Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Ekki liggur fyrir hvað Mohamad, áður Kourani en nú Th. Jóhannesson, gengur til með nafnabreytingunni.
Ekki liggur fyrir hvað Mohamad, áður Kourani en nú Th. Jóhannesson, gengur til með nafnabreytingunni. Vísir

Sakamaðurinn sem áður gegndi nafninu Mohamad Kourani hefur ákveðið að breyta um eftirnafn. Hann vill fella niður nafnið Kourani og taka upp millinafnið Thor og eftirnafnið Jóhannesson.

Sýrlendingurinn Kourani hefur þegar fengið breytinguna í gegn hjá Þjóðskrá. Þar finnst enginn Mohamad Kourani lengur heldur Mohamad Thor Jóhannesson. Mbl greindi fyrst frá. 

Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvers vegna hinn 31 árs gamli Mohamad valdi nöfnin Thor og Jóhannesson. Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar bera nöfnin en þó enginn bæði, fyrr en nú.

Mál Mohamad Th. Jóhannessonar, áður Kourani, hafa vakið mikla athygli hér á landi.  Hann var á dögunum dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fleiri ofbeldisbrot. Fórnarlamb í manndrápstilraunarmálinu lýsti því hvernig fjölskylda hans hefði flúið land. Þá væri hann viss um að Mohamad myndi reyna að drepa barnið sitt ef hann kæmist úr fangelsi.

Sjálfur sagðist Mohamad ekki vera ógnandi maður heldur venjulegur maður. Ef honum yrði haldið í fangelsi yrðu þó vandamál. Vararíkissaksóknari hefur lýst ítrekuðum hótunum af hendi hans og þá hefur hann samkvæmt heimildum fréttastofu hringt ógnandi símtöl í blaðamenn vegna umfjöllunar um mál hans.

Mohamad hafði áður hlotið fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og ýmis brot önnur.

Mohamad situr inni á Litla-Hrauni sem stendur en hann hefur áfrýjað báðum dómum til Landsréttar. 

Kourani kom hingað til lands árið 2018 og fékk þá alþjóðlega vernd. Mál hans hefur orðið til þess að Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur talað fyrir því að breyta lögunum þannig að hægt sé að afturkalla alþjóðlega vernd ef fólk fremur alvarlegan glæp eða ógnar öryggi landsmanna.


Tengdar fréttir

Ætlar að áfrýja til Landsréttar

Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market, og fjölda annarra brota, ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar. 

Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot

Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota, á enga fjölskyldu hér á landi, hefur aldrei verið í vinnu og hefur þegið opinbert fé til framfærslu. Innan við ári eftir komu til landsins hlaut hann sinn fyrsta refsidóm af þónokkrum.

Kourani dæmdur í átta ára fangelsi

Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×