Hamilton á verðlaunapall í 200. sinn Siggeir Ævarsson skrifar 21. júlí 2024 22:46 Þeir sletta freyðivíninu sem eiga það Vísir/Getty Lewis Hamilton heldur áfram að skrá sig í Formúlu 1 sögubækurnar en hann komst á verðlaunapall í 200. skipti á ferlinum þegar hann endaði í þriðja í sæti í Ungverjalandskappakstrinum í dag.
Hamilton bætti þar með eigið með um eitt skipti en enginn ökumaður í sögu Formúlu 1 hefur komist jafn oft á verðlaunapall. Þýska goðsögnin Michael Schumacher er næstur á lista með 155 skipti á palli. Næsti maður á lista sem er enn að keppa er Max Verstappen með 107 skipti en það verður að teljast ansi líklegt að hann safni nokkrum verðlaunasætum í sarpinn á næstu árum ef fram heldur sem horfir. Unprecedented greatness 👑Sir Lewis Hamilton. 200 Formula 1 podiums 🇬🇧#F1 #HungarianGP pic.twitter.com/9GUykrnd82— Formula 1 (@F1) July 21, 2024 Hamilton er sigursælasti ökumaður í sögu Formúlu 1 ásamt Michael Schumacher en þeir eiga báðir sjö ökumannstitla. Þá hefur enginn ökumaður oftar náð fyrsta ráspól en Hamilton, alls 104 sinnum. Þá hefur hann unnið hvern einasta kappakstur þar sem hann ræst fremstur. Hann vann sinn síðasta meistaratitil árið 2020 sem var hans fjórði í röð. Síðan þá hefur fjarað aðeins undan ferlinum hjá kappanum en sigur hans á Silverstone-brautinni í breska kappakstrinum þann 7. júlí var fyrsti sigur hans síðan í desember 2021.
Akstursíþróttir Mest lesið Enzo missir bílprófið og fær sekt upp á hálfa milljón Enski boltinn Bjóða frítt í Herjólf og rútu í von um fjölmenni í Breiðholti Íslenski boltinn Ron Yeats látinn Enski boltinn Vonarstjarna Liverpool með brotið bein í fæti Enski boltinn Tah getur valið úr gylliboðum næsta sumar Fótbolti Vildi vernda De Ligt með því að taka hann af velli Fótbolti Orri Freyr hafði betur gegn Viktori Gísla Handbolti Órætt tíst Ísaks vekur athygli Íslenski boltinn Birkir Fannar í Kaplakrika út leiktíðina Handbolti Vill láta reka Heimi strax: „Kálið endist lengur en tannlæknirinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Hvalreki fyrir Aston Martin í Formúlu 1 Leclerc vann Monza kappaksturinn Táningurinn sem tekur við af Hamilton klessti bílinn í frumrauninni Norris á ráspól á Monza en Verstappen í brasi Átján ára strákur tekur við af Lewis Hamilton Norris sá fyrsti til að vinna Verstappen í hollensku tímatökunum Nýliðarnir sanka að sér dýrmætri reynslu Sjá meira