Innlent

Agnes segist niður­lægð og vill leita til dóms­stóla

Jakob Bjarnar skrifar
Agnes segist ósátt, hún hafi verið niðurlægð og þar er um að kenna sterkum öflum innan kirkjuþings sem vilja gera embættisfærslur hennar ómerkar.
Agnes segist ósátt, hún hafi verið niðurlægð og þar er um að kenna sterkum öflum innan kirkjuþings sem vilja gera embættisfærslur hennar ómerkar. vísir/vilhelm

Agnes M. Sigurðardóttir biskup segist ekki hafa átt sæla daga í embætti. Hún segist hafa verið beitt órétti, hún hafi fengið að finna fyrir því að vera fyrsta konan í embætti biskups og það hafi verið logið miskunnarlaust uppá hana í fjölmiðlum.

Allt þetta kemur fram í viðtali við Agnesi sem birtist í Heimildinni í dag. Þar er farið vítt og breytt yfir sviðið, meðal annars er komið inn á vandræðagang vegna skipunartíma hennar, að hann hafi runnið út 30. júní 2022. 

Áhöld um skipunartímann

Eftir það gerði framkvæmdastjóri Biskupsstofu ráðningarsaming við Agnesi sem gildir til 31. október á þessu ár. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunar komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hún hafi átt að hætta fyrr og embættisverk hennar eftir þann tíma markleysan ein.

Þar er vísað til þess að heimild til biskupskjörs hafi verið samþykkt af kirkjuþinginu 2022 en engin kosning farið fram. Agnes telur að kirkjuþing hefði átt að greiða úr málinu og eyða óvissu um stöðu hennar.

Guðrún Karls Helgudóttir er nýr biskup Íslands og tekur við af Agnesi. Nú er að sjá hvort hún lendir í hakkavél afturhaldssamra karla innan prestastéttarinnar.vísir/vilhelm

„Raunar hefur Agnes sagt að þetta snúist ekki um stöðu hennar sem persónu heldur stöðu biskups, og hún þurfi að vera skýr. Hún hefur því íhugað að vísa málinu til dómstóla, sem er eina leiðin sem fær er eftir að úrskurðarnefnd hefur kveðið upp úrskurð sinn, sem er endanlegur og bindandi innan þjóðkirkjunnar.

Allt vegna þess að hún er kona

Þessu tengist sú ákvörðun Agnesar að framlengja leyfi séra Gunnars Sigurjónssonar sem settur hafði verið af í Digranes- ogh Hjallaprestakalli í september 2022 vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Úrskurðarnefndin hafi hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að Agnes hefði ekki haft umboð til þess.

Að sögn Agnesar hafa ýmsir sagt við hana, löglærðir og ekki, að þeim þyki sá úrskurður einkennilegur. En nýlegar breytingar innan þjóðkirkjunnar hafa falist í því að áfrýjunarnefnd hafi verið lögð niður.

„Nú er ekkert hægt að gera annað en að fara með þetta fyrir dómstóla,“ segir Agnes. Hún telur að hér sé við kirkjuþing að sakast. Og það sem meira er: „Þetta gerist vegna þess að ég er kona. Það er ein ástæðan. Þetta myndi aldrei hafa gerst ef ég væri karl, held ég.“

Agnes segist vilja skila skömminni til kirkjuþings.


Tengdar fréttir

Vilja Agnesi á­fram sem biskup yfir Ís­landi

Framsögumenn ályktunar sem gengur út á að Agnes M. Sigurðardóttir verði eftir sem áður biskup yfir Íslandi eru Bryndís Malla Elídóttir og Kristrún Heimisdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×