Lífið samstarf

Það má leika sér með matinn

Nathan & Olsen
Börn eða barnabörn starfsfólks Nathan&Olsen og 1912, dreifingaraðila Ella’s Kitchen á Íslandi fengu að leika sér með matinn í nýrri auglýsingu.
Börn eða barnabörn starfsfólks Nathan&Olsen og 1912, dreifingaraðila Ella’s Kitchen á Íslandi fengu að leika sér með matinn í nýrri auglýsingu.

Nýjar auglýsingar frá Ella´s Kitchen ganga út á að leyfa börnunum að leika sér með matinn.

Þreifa, kanna, hringla, sulla, smakka, smjatta ... Við hjá Ella’s Kitchen á Íslandi fengum nýlega til okkar 7 börn á aldrinum 6 mánaða til 4 ára til að hafa gaman og leika sér með matinn. Á meðan leyfðum við myndavélinni að rúlla og gripum skemmtileg augnablik þegar börnin gleymdu sér í leik. Rannsóknir hafa sýnt að börn sem upplifa mat með öllum skilningarvitunum, bæði á matmálstíma og utan hans, verða tilbúnari til að prófa matinn eftir því sem þau kynnast honum betur.

Klippa: Það má leika sér með matinn

Með þessum skemmtilegu myndböndum og myndum viljum við hvetja foreldra til að leyfa börnunum að leika sér með matinn, upplifa hann, þefa af honum og smakka.

Skynmatarleikur felst í því að skoða liti, hljóð, bragð og lykt í glaðlegu og upplífgandi umhverfi þar sem börnin fá að prófa sig áfram á sínum tíma. Að upplifa matinn á spennandi og fjölbreyttan hátt getur hjálpað krílum að líða betur með að smakka mat. Með tímanum læra þau að meta hann og eignast heilbrigt samband við mat.

Þetta getur verið sérstaklega hentugt fyrir börn sem eru vandlát og viðkvæm fyrir einhverju nýju. Ef barninu mislíkar einhver matur og neitar að smakka hvetjum við foreldra að setja matinn á hliðardisk í matmálstíma og leyfa barninu að snerta, kreista, þefa og leika sér með matinn án þess að það þurfi að borða hann. Margar rannsóknir hafa sýnt að ef börnum er boðinn matur sem þau hafna endurtekið með þessum hætti getur það að lokum leitt til þess að þau samþykki hann. Einnig getur hjálpað að bjóða börnunum að aðstoða við að undirbúa matinn.

Börnin í myndatökunni er öll börn eða barnabörn starfsfólks Nathan&Olsen og 1912, dreifingaraðila Ella’s Kitchen á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×